Skip to main content

Nemendahestar

Nemandur og hestar þeirra inni í reiðhöll

Auk þeirra hesta sem Háskólinn leggur til þurfa nemendur sjálfir að koma með hesta, svokallaða nemendahesta. Mismunandi kröfur eru gerðar til nemendahestanna eftir námsárum. Í námskeiðum þar sem nemandinn þarf að nota nemendahesta þarf kennari námskeiðsins að samþykkja þá. Í náminu ber að fylgja fyrirmælum kennara viðkomandi námskeiðs varðandi þjálfun og aðra meðhöndlun hestsins. Gæði gangtegunda, hreyfinga og þjálfunar hestsins hafa áhrif á framfarir nemandans og námsárangur. Því betri sem hesturinn er, því meiri árangur næst.

Í fyrsta tíma hvers námskeiðs skulu nemendahestar mæta á járnum og í þjálfun. Þeir skulu vera í góðu fóðurástandi, þ.e. holdastigi 3–3,5. Ef hesturinn er óhæfur til kennslu telst það fjarvist nemandans þar sem hann getur ekki tekið þátt í kennslunni. Ef um skyndileg meiðsli eða veikindi hests er að ræða gilda almennar reglur um fjarvistir enda liggi fyrir dýralæknisvottorð. Nemandinn sér sjálfur um járningar, munnholsskoðanir og aðkomu dýralæknis ef þess þarf.

Öll valkvæð meðhöndlun hestsins, svo sem nudd, hnykkingar eða önnur sambærileg meðferð, skal fara fram utan kennslustunda og má ekki hafa áhrif á mætingu eða þátttöku nemandans í kennslu.

Ætlast er til að hestarnir séu þjálfaðir innan skólatíma nema annað hafi verið samþykkt af kennara viðkomandi námskeiðs. Á skólatíma er óheimilt að fara með hestana af staðnum eða taka þátt í keppni eða öðrum verkefnum án samþykkis umsjónarkennara. Sama gildir um utanaðkomandi afskipti eða aðstoð við þjálfun hestanna á staðnum. Óheimilt er að aðrir en nemandinn sjálfur ríði hestinum nema með samþykki kennara viðkomandi námskeiðs. Þar sem þjálfun hestsins telst verkefni í náminu gilda ákvæði námsreglna skólans.

Ef nemandi er ekki eigandi þess hests sem hann notar í náminu skal hann við upphaf viðkomandi námskeiðs skila inn undirritaðri staðfestingu eiganda um að hesturinn sé lánaður til notkunar í náminu (sjá eyðublað á heimasíðu).

Nemendur hestafræðideildar skulu vera með gilda slysatryggingu allan námstímann. Öll hross sem eru á vegum nemenda á námstímanum eru á ábyrgð nemandans en ekki skólans. Nemendum er í sjálfsvald sett hvort þeir kjósa að tryggja hross sín sérstaklega.

Varahestar eða ef skipta þarf um nemendahest

Í sumum námskeiðum er mælt með að nemendur hafi aðgang að varahesti. Varahestur sem samþykktur hefur verið af umsjónarkennara má nota tímabundið ef nemendahesturinn forfallast. Ef nemendahesturinn getur ekki verið notaður í lokaprófi getur nemandinn komið með varahest, enda hafi hann sannanlega þjálfað hann sjálfur í að minnsta kosti einn mánuð fyrir lokapróf.

Ef nemendahestur forfallast innan við mánuði fyrir lokapróf getur nemandinn fengið tilboð um skólahest út námskeiðið. Leitast er við að finna hest af sambærilegum gæðum og nemendahesturinn sem forfallaðist, þó það sé ekki alltaf mögulegt. Tilboð um lánshest frá skólanum gildir ekki í námskeiðunum KYD, ÞJK I og ÞJK II.

Í námskeiðum þar sem nemendur leggja sjálfir til hest má skipta um hest eftir að námskeið hefst, en aðeins ef umsjónarkennari telur nýja hestinn af betri gæðum og/eða betur til þess fallinn að styðja við framgang nemandans í náminu og að skiptin hafi ekki neikvæð áhrif á framvindu námskeiðsins.

Nemendum í hestafræði ber að kynna sér vel þær reglur sem gilda um notkun og umönnun hesta í þeirri aðstöðu sem þeir hafa aðgang að á vegum HÍ á Hólum. Umsjónarkennarar viðkomandi námskeiða veita nánari upplýsingar eftir því sem við á.

Hestar sem nemendur þurfa að útvega eru eftirfarandi, eftir námsárum: