Skip to main content

Skrifstofa og stoðþjónusta HÍ á Hólum

Aðalbygging HÍ á Hólum

Skrifstofa HÍ á Hólum er staðsett í aðalbyggingu skólans á Hólum og á Faxatorgi á Sauðárkróki.

Starfsfólk stoðþjónustu og stjórnendur HÍ á Hólum annast margvíslega þjónustu við kennara og nemendur, sem hafa greiðan aðgang að starfsfólki á skrifstofu sviðsins, með tölvupósti, í viðtölum á afgreiðslutíma, með símtölum eða á sérstökum fundum á staðnum eða í fjar. Nemendur geta leitað upplýsinga, leiðbeininga og ráðgjafar hjá kennslustjóra HÍ á Hólum og starfsfólki einstakra deilda skólans.

Á skrifstofunni starfa forseti HÍ á Hólum ásamt rekstrarstjóra sem annast fjármálastjórn sviðsins og daglega stjórnun skrifstofunnar. Kennslustjóri sér um almenna þjónusta við nemendur og kennara. Starfsfólk stoðþjónustu sér einnig um margvísleg verkefni fyrir hönd HÍ á Hólum, s.s. alþjóðamál, kennslumál, markaðs- og kynningarmál, umsjón með upplýsingatæknimálum, starfsmannamál, rannsóknaþjónustu o.fl. Að auki hafa nemendur og starfsfólk aðgang að allri stoðþjónustu innan Háskóla Íslands, annað hvort með því að hafa beint samband við til dæmis Þjónustuborð HÍ eða í gegnum tengiliði HÍ á Hólum við einstök svið innan HÍ.