Hér eru svör við ýmsum algengum spurningum varðandi Háskóla Íslands á Hólum. Þar sem HÍ á Hólum er hluti af Háskóla Íslands hafa nemendur aðgang að ýmisum þjónustuleiðum beint í gegnum Þjónustuborð HÍ. Á vef Þjónustumiðjunnar, eru upplýsingar og ýmis rafræn þjónusta sem nemendur hafa aðgang að. Hvar og hvenær á ég að sækja um nám? Sjá upplýsingar um grunnnám hér. Sjá upplýsingar um framhaldsnám hér. Hvert er skrásetningargjaldið og hvernig greiði ég? Upplýsingar um skrásetningargjald má finna hér. Nemendur við Háskóla Íslands greiða árlegt skrásetningargjald en ekki skólagjöld. Þú greiðir skrásetningargjaldið í umsóknagáttinni með greiðslukorti. Skrásetningargjaldið verður að greiða fyrir eindaga, 4. júlí fyrir nám sem hefst á haustmisseri. 6. janúar fyrir nám sem hefst á vormisseri. Með greiðslu gjaldsins staðfestir þú skólavist þína. Nemendur í hestafræði þurfa að greiða leigu fyrir stíu og fóður fyrir hesta sína. Nánari upplýsingar um þau gjöld eru á síðu Hestafræðideildar. Hvenær byrjar kennslan? Haustmisseri hefst með nýnemadögum í kringum 20. ágúst. Kennsla í staðnámi hefst á svipuðum tíma og kennsla í staðlotum hefst í sömu viku og nýnemadagar. Upplýsingar um skipulag náms og lotur eru birtar á síðum viðkomandi deilda. Er skylda að mæta í tíma? Það fer eftir því í hvaða námi þú ert. Nám í hestafræði fer fram í staðbundnu námi á Hólum í Hjaltadal. Gerð er krafa um mætingu í námskeiðum þar sem tímasókn er hluti af námsmati og/eða þar sem kennsla byggist að hluta á framlagi nemenda, s.s. í verklegum tímum, umræðu- og verkefnatímum. Kennarar setja upp verklega tíma með skyldumætingu og ber nemendum að mæta í þá tíma sem skipulagðir eru. Nemendur fá upplýsingar hjá kennurum námskeiða og ber nemendum að kynna sér vel þær reglur sem gilda um mætingar í þeim námskeiðum sem þau eru skráð í. Nám í Ferðamáladeild og Fiskeldis- og fiskalíffræðideild er sett upp í fjarnámi með staðbundnum lotum sem skildumæting er í. Hvernig eru lotur skipulagðar og er skyldumæting? Lotur eru settar upp innan þeirra deilda sem námið tilheyrir og nemendur fá upplýsingar um hjá kennurum námskeiða sem nemendur eru skráðir í. Staðlotur eru oftast haldnar á Hólum í Hjaltadal en stundum skipulagðar í öðrum landshlutum. Skyldumæting er í lotur óháð því hvar og hvenær þær eru haldnar. Loturnar eru oftast í tvo til fjóra daga 2-3 sinnum á misseri. Fyrir utan lotur er námið óháð stað en ekki alltaf stund og geta nemendur þurft að mæta stundum í rafrænar kennslustundir, hlusta/horfa á fyrirlestra, taka þátt í umræðum og/eða verkefnavinnu. Nemendum ber að kynna sér vel þær reglur sem gilda um skipulag og mætingar í þeim námskeiðum sem þau eru skráð í. Hvert sný ég mér með fyrirspurnir um inntökuskilyrði, mat á námi, námskipan o.þ.h.? Hægt er að hafa samband við kennslustjóra HÍ á Hólum eða deildarstjóra viðkomandi deilda til að fá nánari upplýsingar um námið í HÍ á Hólum. Upplýsingar um starfsfólk HÍ á Hólum eru á heimasíðu HÍ. Hvernig fæ ég aðgang að Uglu og tölvukerfum skólans? Um leið og þú hefur greitt skrásetningargjaldið getur þú sótt notandanafn og lykilorð í umsóknagáttinni. Birting notandanafns og lykilorðs í Uglu varir í stuttan tíma í umsóknagáttinni og því mikilvægt að skrá niður hjá sér notandanafnið og lykilorðið þegar það birtist í gáttinni. Með aðgangi að Uglu færð þú einnig netfang hjá Háskólanum (notendanafn@hi.is). Háskólatölvupóstinn finnur þú í gegnum Uglu. Nemendur sem hófu nám við Háskólann á Hólum fyrir stofnun háskólasamstæðunnar 1. júlí 2026, þurfa að fá nýtt notendanafn og búa til nýtt lykilorð - nánari upplýsingar og leiðbeiningar eru hér. Hvert sný ég mér með fyrirspurnir um skiptinám? Tengiliður við Alþjóðasvið HÍ er við HÍ á Hólum og veitir upplýsingar um möguleika nemenda HÍH á skiptinámi. HÍ er í samstarfi við yfir 400 háskóla út um allan heim sem veitir nemendur fjölbreytt tækifæri til að stunda hluta af námi sínu erlendis, öðlast alþjóðlega reynslu og skapa sér sérstöðu. Upplýsingar um skiptinám er að finna á vefsvæði Alþjóðasviðs Háskóla Íslands. Hver sný ég mér með fyrirspurnir um námsval, úrræði vegna fötlunar og sérþarfa, námstækni, líðan o.þ.h.? Nemendur HÍ á Hólum hafa aðgang að allri nemendaþjónustu innan HÍ. Starfsfólk Nemendaráðgjafar Háskóla Íslands (NHÍ) veitir nemendum ráðgjöf og stuðning meðan á námi stendur, s.s. um námsval, vinnubrögð í háskólanámi og undirbúning fyrir atvinnuleit. NHÍ styður við jafnrétti og fjölbreytileika nemenda, m.a. með úrræðum í námi og prófum og sálfræðiráðgjöf. Hægt er að panta tíma hjá ráðgjafa og NHÍ stendur fyrir allskonar námskeiðum og fræðslu fyrir nemendur bæði á staðnum og í fjarfundum m.a. um námstækni, sjálfshjálp, störf að loknu námi og fleira. Ráðgjafar frá NHÍ munu koma á Hóla samkvæmt skipulagi sem kynnt verður nemendum á hverju misseri. Nánari upplýsingar um Nemendaráðgjöf HÍ má finna á heimasíðu þeirra. HÍ á Hólum facebooklinkedintwitter