Skip to main content

Geðveikir dagar

Mánudagur 2.febúar kl.11:30-13:00, Háskólatorg.
Kynningar á Háskólatorgi frá Nemendaráðgjöf HÍ, Sálfræðiráðgjöf og Félagsráðgjöf háskólanema, Einhugar – hópar fyrir háskólanemendur á einhverfurófi. (Bergið Headspace, Píeta, Geðhjálp)

Þriðjudagur 3.febrúar kl.11:30, Háskólatorg
Pallborð um geðheilbrigðismál.
Alma Möller, heilbrigðisráðherra Íslands
Pétur Maack, formaður Sálfræðingafélag Íslands
Grétar Björnsson, stjórnarmeðlimur Hugarafls
Eiríkur Kúld, Fulltrúi stúdenta
Kynnir (í vinnslu)

Miðvikudagur 4.febrúar kl.10:00 til 13:00, Litla Torg.
Kl. 10:00 - 10:30
José M. Tirado, forsprakki Hugleiðsluhóp Háskóla Íslands, leiðir hugleiðslu í morgunsárið.
Kl.11:30-12:00
Titill: Betri Svefn – betri líðan í skammdeginu
Fyrirlesari: Dr. Erla Björnsdóttir sálfræðingur.
Í þessu erindi fjallar Dr. Erla Björnsdóttir, svefnsérfræðingur og stofnandi Betri svefns, um hvernig skammdegið og klukkan á Íslandi hafa áhrif á líkamsklukkuna, svefn og líðan. Rætt verður um breytingar á klukkunni, hvað þær þýða fyrir heilsu okkar og hvers vegna margir upplifa syfju, svefnvanda og orkuleysi yfir vetrarmánuðina. Einnig verða kynnt hagnýt ráð til að bæta svefn, stilla líkamsklukkuna og líða betur í myrkrinu.
Kl.12:00-12:30
Titill: Má bara ræða þetta?
Undirtitill: Er umræða um sjálfsvíg skaðleg eða hættuleg?
Fyrilesari: Dr. Tómas Kristjánsson, sálfræðingur.
Umsögn: Dr. Tómas Kristjánsson, sálfræðingur, fjallar um umræðu um sjálfsvíg, bæði í fjölmiðlum, samfélagsumræðu og í samtölum á milli einstaklinga. Hvað má og hvað má ekki? Hvað er satt og hvað eru mýtur? Hvernig getum við notað vísindi til þess að leiða umræðuna á þann stað að hún geti stutt og hjálpað þeim sem glíma við sjálfsvígshugsanir?
Kl.12:30-13:00
Titill: ADHD hjá stúlkum og konum: hormónasveiflur og ADHD einkenni
Fyrirlesari: Unnur Jakobsdóttir Smári, sálfræðingur.
Umsögn: Hormónasveiflur sem tengjast tíðahring kvenna, meðgöngu og breytingaskeiðinu geta haft töluverð áhrif á ADHD einkenni og meðferð við ADHD. Farið verður yfir stöðu núverandi þekkingar í þessum efnum.

Fimmtudagur 5.febrúar, kl.11:30-13:00, Litla Torg.
Kl.11:30-12:00
Titill: Nærumst og njótum
Undirtitill: Hvernig nærum við okkur á heilbrigðan hátt?
Fyrirlesari: Ingunn Erla Ingvarsdóttir, klínískur næringarfræðingur
Umsögn: Í þessu erindi fer Ingunn Erla Invarsdóttir, klínískur næringarfræðingur, yfir hvernig hægt sé að næra sig og efla heilsu á heilbrigðan hátt. Þá verður einnig farið yfir hvernig óheilbrigt samband við mat getur haft áhrif á ákvarðanatöku í kringum næringu og leiðir til að rjúfa það.
Kl.12:00-12:30
Titill: Hvernig hreyfi ég mig í takt við brenglaðar væntingar?
Fyrirlesari: Einar Hansberg Árnason, íþróttafræðingur og þjálfari
Umsögn: Í þessum fyrirlestri fer Einar Hansberg Árnason, íþróttafræðingur og þjálfari, yfir mikilvægi hreyfingar í tengslum við geðheilbrigði. Farið verður yfir hvernig hafa brenglaðar væntingar geta haft áhrif á hreyfingu okkar, hvaða væntingar við gerum til sjálfra okkar og hvað gerist ef við stöndum ekki undir þeim.
Kl.12:30-13:00
Titill: Að byrja saman 101
Fyrirlesari: Áslaug Kristjánsdóttir, kynfræðingur
Umsögn: Í þessu erindi fjallar Áslaug Kristjánsdóttir kynfræðingur um leiðir til að hefja samband, „bleika skýjið“, hvað gerist í líkamanum og tilfinningar og hugsanir sem takast. Þá verður rætt um frammistöðukvíða, höfnun og hjálpleg ráð.
Kl.20:00
Pub-quiz á Stúdentakjallaranum í umsjón Animu, nemendafélag sálfræðinema.