Skip to main content

Ferðastyrkir doktorsnema

Ferðastyrkir fyrir doktorsnema við Háskóla Íslands eru ætlaðir til að standa straum af kostnaði ráðstefnuferða erlendis og er ætlast til að doktorsneminn sé með faglegt framlag á þeirri ráðstefnu sem sótt er um styrk fyrir. Einnig geta doktorsnemar sótt um styrk vegna námskeiða og sumarskóla erlendis sýni þeir fram á samþykkta skráningu ásamt stuttum rökstuðningi fyrir því hvernig sú þátttaka gagnast doktorsnámi viðkomandi.

Opið er fyrir umsóknir. 

Upphæð styrks er að hámarki 100.000 kr. 

Árlegri skráningu hjá Nemendaskrá fyrir háskólaárið þarf að vera lokið svo umsókn teljist gjaldgeng í sjóðinn.

Nánari upplýsingar veitir Vísinda- og nýsköpunarsvið

Tengt efni