Í fimm ára kennaranámi, í deild faggreinakennslu á Menntavísindasviði, er boðið upp á kjörsviðið Textíll og hönnun innan námsbrautar list- og verkgreina. Námið er undirbúningur fyrir textílkennslu í grunn- og framhaldsskólum. Kennaranemar tileinka sér fjölbreyttar vinnuaðferðir með áherslu á hönnun, listir, sjálfbærni og nýsköpun. Unnið er með skapandi tjáningarleiðir frá hugmynd að fullvinnslu og mikilvægi textíla í sögulegu samhengi. Kennsla, á kjörsviðinu Textíll og hönnun, hefur það að meginmarkmiði að efla fagþekkingu kennaranema og að gera þá sem hæfasta til að miðla þekkingu sinni með fjölbreyttum kennsluaðferðum. Lögð er áhersla á tengingu textílgreinarinnar við framhaldsnám og atvinnulíf. Kennslufræði greinarinnar er samtengd textílnámskeiðum sem í boði eru og námi nemenda á starfsvettvangi. Skipulag námsins Ljúka þarf 180 einingum í grunnnámi til að öðlast B.Ed. gráðu. Show Námskeið í Textíl og hönnun í grunnnámi LVG104G Hönnun sem uppspretta sköpunar - 10 einingarLVG206G Kennslufræði hönnunar og handverks - 10 einingarLVG001G Nýsköpun í textíl - 10 einingarLVG021G Textílaðferðir - 10 einingaLVG013G Vettvangsnám og kennslufræði í textílhluta - 5 einingar (3Ve)LVG012G Textílhönnun - 5 einingarLVG005G Vettvangsnám og kennslufræði í fatahluta - 5 einingar (3Ve)LVG004G Fatahönnun - 5 einingarLVG601L Lokaverkefni (B.Ed.) - 10 einingar Ljúka þarf 120 einingum í framhaldsnámi til að öðlast M.Ed. eða MT gráðu og kennararéttindi. Show Námskeið í Textíl og hönnun í framhaldsnámi (meistaranámi) LVG105M Sjálfbærni í textíl: Neysla, nýting og nýsköpun - 5 einingarLVG501M Fata- og nytjahlutahönnun - 5 einingarLVG106M Skapandi endurnýting textíla - 5 einingarLVG107M Textíllist, tíska og hönnun í sögulegu samhengi - 5 einingarLVG008M Fatahönnunar- og híbýlasaga: Tíska, textíll, húsgögn og byggingar - 5 einingarLVG005M Hugmynda- og hönnunarvinna - 5 einingarLVG202M Miðlun og skapandi leiðir í list- og verkgreinum - 10 einingar (sameiginlegt list- og verkgreinum)LVG401L Lokaverkefni 30e (M.Ed. leið, ekki MT leið)LVG103F Kennsla list- og verkgreina 1 (Menntun framhaldsskólakennara - sameiginlegt list- og verkgreinum)LVG202F Kennsla list- og verkgreina 2 (Mennntun framhaldsskólakennara - sameiginlegt list- og verkgreinum) Oddviti kjörsviðs: Ásdís Ósk Jóelsdóttir aoj@hi.is facebooklinkedintwitter