Fjörutíu og einn nýnemi í Háskóla Íslands úr 19 framhaldsskólum víðs vegar af landinu tók við styrk úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta Háskóla Íslands við athöfn í Hátíðasal skólans 31. ágúst. Um metfjölda styrkþega var að ræða en þetta var í þrettánda sinn sem styrkjum er úthlutað úr sjóðnum. MYNDIR/Kristinn Ingvarsson
Til þess að fá að nota myndirnar verður að senda póst til Höllu Hallsdóttur, hallah@hi.is. Einnig á að skila öllum myndum til hennar sem teknar eru á vegum Háskólans.