Sameinuðu þjóðirnar hafa skilgreint sautján heimsmarkmið sem lýsa stærstu viðfangsefnum og helstu áskorunum sem þjóðir heims standa nú frammi fyrir.
Öll aðildarríki Sameinuðu þjóðanna hafa skuldbundið sig til að innleiða markmiðin sautján bæði á innlendum og erlendum vettvangi út gildistíma þeirra árið 2030.
Gríðarlega mikilvægt er að sérfræðiþekking og rannsóknir séu nýttar til að leita lausna á þeim viðamikla vanda sem heimsmarkmiðin lýsa og einfaldi samfélögum að takast á við þær áskoranir sem þeim fylgja. Aðalatriðið er að leita lausna í þágu allra.
Fyrsti opni viðburðurinn var haldinn 17. október 2019 og þá beindu þau Magnús Karl Magnússon, prófessor við Læknadeild, og Unnur Anna Valdimarsdóttir, prófessor í lýðheilsuvísindum, sjónum að þætti sem snertir okkur öll, heilsu og vellíðan, markmið 3. Einnig fjallaði Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra um mikilvægi heimsmarkmiðanna fyrir íslenskt og alþjóðlegt samfélag.
Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, sagði frá hvernig Háskóli Íslands hyggst nýta heimsmarkmiðin í starfi sínu og stefnumótun.
Til þess að fá að nota myndirnar verður að senda póst til Höllu Hallsdóttur, hallah@hi.is. Einnig á að skila öllum myndum til hennar sem teknar eru á vegum Háskólans.