Sameinuðu þjóðirnar hafa skilgreint sautján heimsmarkmið sem lýsa stærstu viðfangsefnum og helstu áskorunum sem þjóðir heims standa nú frammi fyrir. Öll aðildarríki Sameinuðu þjóðanna hafa skuldbundið sig til að innleiða markmiðin sautján bæði á innlendum og erlendum vettvangi út gildistíma þeirra árið 2030.
Gríðarlega mikilvægt er að sérfræðiþekking og rannsóknir séu nýttar til að leita lausna á þeim viðamikla vanda sem heimsmarkmiðin lýsa og einfaldi samfélögum að takast á við þær áskoranir sem þeim fylgja. Aðalatriðið er að leita lausna í þágu allra.
Annar viðburðurinn var haldinn 19. nóvember 2019 þegar Sigrún Ólafsdóttir, prófessor við Félagsfræði-, mannfræði- og þjóðfræði deild, Berglind Rós Magnúsdóttir, dósent við deild menntunar og margbreytileika, Vilborg Oddsdóttir, félagsráðgjafi hjá Hjálparstarfi kirkjunnar og Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri, fjölluðu um heimsmarkmið 1, engin fátækt.
Til þess að fá að nota myndirnar verður að senda póst til Höllu Hallsdóttur, hallah@hi.is. Einnig á að skila öllum myndum til hennar sem teknar eru á vegum Háskólans.