![](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/namsleid_efsti/public/ghg/sigrun_antonsdottir_1.jpg?itok=5OdlcuT2)
Frönsk fræði
180 einingar - Doktorspróf
Doktorsnám í frönskum fræðum er þriggja ára rannsóknatengt framhaldsnám þar sem nemandinn vinnur sjálfstætt að eigin rannsóknarverkefni. Umfang rannsóknaverkefnis skal vera 180 e og það getur náð inn á ólík svið fræðanna: bókmenntir, málvísindi, þýðingar, menningarfræði.
![](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/mynd___kassa/public/ghg/kri_hugvisindi_kynningarm_170426_005_0.jpg?itok=QrfMppP-)
Nemendafélög
Nemendur sem stunda doktorsnám á Hugvísindasviði geta gengið í Félag doktorsnema og nýdoktora við Háskóla Íslands. Þeir eru einnig sjálfkrafa skráðir í Félag doktorsnema á Hugvísindasviði sem vinnur að hagsmunamálum doktorsnema á sviðinu, miðlar upplýsingum til þeirra, tilnefnir fulltrúa doktorsnema í ráð og nefndir og stendur fyrir félagsstarfi meðal doktorsnema á Hugvísindasviði.
Hafðu samband
Skrifstofa Hugvísindasviðs er staðsett á 3. hæð í Aðalbyggingu Háskólans við Sæmundargötu 2.
Skrifstofan er opin kl. 10-12 og 13-15 alla virka daga. Hægt er að nálgast upplýsingar í síma 525 4400 eða með tölvupósti á netfangið hug@hi.is.
Nemendur við Hugvísindasvið geta einnig nýtt sér þjónustuborð Háskólans á Háskólatorgi.
![](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/mynd___kassa/public/ghg/_kri4332.jpg?itok=53eTL64a)