Zill e Huma útskrifaðist með ágætiseinkunn í verkefnastjórnun

Zill e Huma, sem er frá Pakistan, útskrifaðist með meistaragráðu í verkefnastjórnun frá Félagsvísindasviði Háskóla Íslands 13. júní.
Zill e Huma er með bakgrunn í landbúnaðar- og garðyrkjufræðum en fann snemma í grunnnámi sínu að hún hafði sérstakan áhuga á stjórnun og verkefnavinnu. Sá áhugi leiddi hana til Íslands þar sem hún hóf meistaranám í verkefnastjórnun við Háskóla Íslands.
Hún segir ákvörðunina um að velja Háskóla Íslands ekki hafa verið tilviljun. Eftir grunnnámið leitaði hún að meistaranámi erlendis sem gæti veitt henni raunverulega leiðtogafærni, rannsóknarreynslu og hagnýta þekkingu til að takast á við áskoranir í síbreytilegum heimi. Háskóli Íslands heillaði hana með aðgengilegu námi, öflugu fræðasamfélagi og kennurum sem hvöttu til sjálfstæðrar hugsunar.
Markmið hennar með náminu var meðal annars að styrkja færni sína til að stýra rannsóknarverkefnum í landbúnaði, nýsköpunarkerfum og virðiskeðjum í matvælaframleiðslu.
Það sem stóð sérstaklega upp úr í náminu var námskeiðið Microeconomics of Competitiveness hjá Runólfi Smára Steinþórssyni prófessor. Þar kynntist hún klasakenningum og hvernig atvinnugreinar, stofnanir og landsvæði tengjast og móta samkeppnishæfni. „Þetta var ný leið til að sjá heiminn,“ segir hún.
Námskeiðið hafði svo mikil áhrif á hana að hún ákvað strax að biðja Runólf um að leiðbeina sér í lokaritgerðinni. Hún hafði upphaflega hugsað sér að rannsaka ferðaþjónustuklasa á Íslandi, en undir hans handleiðslu þróaðist verkefnið áfram og tók einnig til orkuklasa, sem gaf rannsókninni meiri dýpt.
Zill e Huma segir stærstu áskorunina hafa verið að standast miklar akademískar kröfur samhliða áhyggjum af framtíðartækifærum. Hún vann einnig hlutastarf með náminu og studdi móður sína í Pakistan. „Það þurfti mikla þrautseigju og stranga tímastjórnun það var ekkert pláss fyrir styttileiðir,“ segir hún.
Það sem kom henni mest á óvart var hversu ólíkt íslenska námsumhverfið var því sem hún þekkti frá Pakistan. Í stað hefðbundins prófamiðaðs náms voru verkefni, kynningar og virk þátttaka í umræðum stór hluti námsins. Hún segir það hafa verið mikla breytingu en mjög jákvæða, enda hafi hún eflt kynningar- og samskiptafærni sína verulega.
Aðspurð um námsráð til nýnema segir hún mikilvægt að byggja sterkan grunn fyrst, takast síðan smám saman á við erfiðari viðfangsefni og sýna sjálfum sér þolinmæði. „Build knowledge step by step,“ segir hún.
Samhliða náminu tók Zill e Huma þátt í Erasmus Student Network, sem gaf henni tækifæri til að kynnast fólki með ólíkan bakgrunn, á sama tíma og hún sinnti vinnu og fjölskylduábyrgð.
Eftir útskrift dreymir hana um að halda áfram í doktorsnám og vinnur hún nú að því að láta þann draum verða að veruleika.
Zill e Huma er sérstaklega stolt af því að útskrifast með ágætiseinkunn, ekki síst í ljósi alls þess sem hún þurfti að samræma á námstímanum. „Given everything I was balancing, it means everything to me,“ segir hún.
Utan námsins hefur hún mikinn áhuga á plöntum, garðrækt og ferðalögum. Að kanna nýja staði og menningarheima nærir forvitni hennar og ævintýraþrá.
Til hamingju með glæsilegan árangur, Zill e Huma!
