Ýmsar hliðar upplýsingatækninnar í HÍ á UTmessu

Veflausn sem nýtist til að finna vísbendingar um raskanir og sjúkdóma í tali fólks, íshellir í sýndarveruleika, tölvusýn inn í mannsheilann, stafrænir tvíburar og félagslegir töfrar án stafrænna milliliða er meðal þess sem verður að finna á svæði Háskóla Íslands á tæknidegi UTmessunnar 7. febrúar í Hörpu. Hin árlega Hönnunarkeppni HÍ fer einnig fram á hátíðinni, eins og undanfarin ár.
UTmessan hefur verið haldin í 15 ár en markmið hennar er að kynna nýjustu strauma og stefnur í tölvu- og tækniheiminum, bæði fyrir fagfólki og almenningi. Ráðstefnan er tvískipt og fer fram dagana 6. og 7. september.
Föstudagurinn 6. september er svokallaður ráðstefnudagur þar sem boðið er upp á fyrirlestra fyrir fagfólk í tæknigeiranum. Meðal fyrirlesara eru fjölmargir fulltrúar frá HÍ sem fást við upplýsingatækni í störfum sínum. Uppselt er á ráðstefnudaginn sem lýkur með afhendingu upplýsingatækniverðlauna Ský 2026.
Tæknidagur UTmessunnar fer fram laugardaginn 7. febrúar milli kl. 11 og 16 og er hann opinn öllum og aðgangur ókeypis. Þar geta gestir kynnt sér ýmsar tækninýjungar og rannsóknir tengdar upplýsingatækni á afar breiðum breiðum grunni ásamt því að spreyta sig á alls kyns þrautum hjá sýnendum sem eru fjölmargir.
Á sýningarsvæði Háskóla Íslands í Silfurbergi kennir ýmissa grasa en þar kynnir starfsfólk og nemendur af mjög fjölbreyttum fræðasviðum skólans verkefni og nýjungar sem þau vinna að. Á svæðinu verður t.d. hægt að skoða yfir 500 gagnvirk kort og hreyfimyndir sem sýna ólíkar hliðar á mannlífi og náttúru heimsins og kynna sér hvernig þrívíddarprentuð heilalíkön sýna breytingar í heilanum sem tengjast taugahrörnunarsjúkdómum.
Þá kynnir fyrirtækið ALDA: Klínísk málsýnagreining nýja veflausn sem greinir málsýni sjálfvirkt og er ætlað að finna vísbendingar um raskanir og sjúkdóma í upptökum af tali fólks. Gestum býðst að prófa lausnina. Einnig verður hægt að kynna sér hvernig fornmunir eru þrívíddarskannaðir og skoða þá með sýndarveruleikagleraugum. Þá geta gestir fylgst með sviðsettri netárás á innviði á Íslandi í gegnum LEGO-módel, pælt í þróun trausts til stjórnmálafólks og ánægju með lýðræði á síðustu áratugum og séð hvernig sérfræðingar í jarðvísindum nýta dróna og þrívíddarlíkön til að greina landslagið. Enn fremur fá gestir innsýn í falinn heim Vatnajökuls og geta meðal annars stigið inn í íshelli með hjálp sýndarveruleika.
Á svæðinu verður einnig rafknúinn kappakstursbíll verkfræðinema við HÍ og myndir, myndbönd og tölvuleikir sem nemendur í tölvugrafík hafa gert. Þá verður hægt að kynnast verkefnum og reynslu kvenna og kvára í tölvunarfræði við Háskóla Íslands og þau sem vilja hvíld frá hinni stafrænu tækni geta upplifað félagslega töfra á svæði HÍ og horft í augu annarrar manneskju án stafrænna milliliða!
Hönnunarkeppni HÍ líka í Silfurbergi
Í hluta Silfurbergs í Hörpu fer einnig fram hin árlega og sívinsæla Hönnunarkeppni HÍ á vegum véla- og iðnaðarverkfræðinema skólans. Sem fyrr hafa keppendur hannað og smíðað róbóta sem ætlað er að leysa ýmsar þrautir á sérútbúinni keppnisbraut. Veitt verða verðlaun fyrir efstu sætin í keppninni og frumlegustu hönnun róbóta. Þetta er í 34. sinn sem Hönnunarkeppnin er haldin og hún er öllum líka opin meðan húsrúm leyfir.
Hægt er að kynna sér dagskrá UTmessu á vef ráðstefnunnar.
