World Robot Olympiad kemur til Íslands

Ísland verður frá og með vorinu 2027 hluti af World Robot Olympiad (WRO), einni stærstu alþjóðlegu vélmenna- og STEM-keppni heims fyrir ungt fólk. Markmiðið er að byggja upp öfluga árlega keppni hér á landi þar sem nemendur á ólíkum aldri geta tekist á við skapandi áskoranir í forritun, verkfræði, nýsköpun og vélmenntækni.
World Robot Olympiad var stofnað árið 2004 og hefur starfsemin síðan náð til meira en 175.000 ungmenna um allan heim. Í dag taka um 32.100 lið þátt í WRO í yfir 100 virkum aðildarlöndum.
Í keppninni vinna nemendur saman í liðum að því að hanna, smíða og forrita vélmenni og þróa lausnir við fjölbreyttum áskorunum. Áherslan er ekki aðeins á tæknilega færni heldur einnig á sköpunargáfu, lausnaleit, samvinnu og nýsköpun.
Byggt á meira en tveggja áratuga reynslu
Háskóli Íslands hefur staðið fyrir FIRST LEGO League á Íslandi í meira en tvo áratugi. Þar hafa kynslóðir grunnskólanemenda fengið tækifæri til að kynnast forritun, verkfræði og vísindum í gegnum verklegt og skapandi nám.
World Robot Olympiad er næsta skref í þeirri uppbyggingu. Keppnin býður upp á fjölbreyttari vélmennaáskoranir fyrir mismunandi aldurshópa, gefur kost á notkun fjölbreyttari vélmennabúnaðar og nær til stærri hóps ungs fólks en áður. Þar á meðal eru framhaldsskólanemar sem hingað til hafa haft færri tækifæri til þátttöku í keppnum af þessu tagi hér á landi.
Langtímamarkmiðið er að skapa stóran árlegan viðburð fyrir ungt fólk á ólíkum aldri og byggja upp skýra leið frá fyrstu kynnum af forritun og vélmenntækni yfir í sífellt þróaðri verkefni á sviði verkfræði og nýsköpunar.
Með þátttöku Íslands í WRO skapast nýr vettvangur fyrir STEM-menntun hér á landi og jafnframt ný tækifæri fyrir íslenskt ungt fólk til að hitta, læra af og keppa með jafnöldrum sínum víðs vegar að úr heiminum.

Alþjóðleg tækifæri
Íslenska WRO-keppnin verður hluti af alþjóðlegu WRO-samfélagi. Lið sem standa sig vel hér á landi geta því átt möguleika á að komast áfram og verða fulltrúar Íslands á alþjóðlegum WRO-viðburðum.
Með þátttöku Íslands í WRO skapast nýr vettvangur fyrir STEM-menntun hér á landi og jafnframt ný tækifæri fyrir íslenskt ungt fólk til að hitta, læra af og keppa með jafnöldrum sínum víðs vegar að úr heiminum.
NýMennt við Menntavísindasvið Háskóla Íslands hefur umsjón með WRO á Íslandi.
Nánari upplýsingar um keppnina, keppnisflokka og þátttöku má finna á wro.hi.is.
Forskráning er þegar hafin og áhugasöm lið og leiðbeinendur geta skráð sig til að fá upplýsingar um næstu skref og komandi keppnistímabil.
