Von á yfir 2.500 vísindamönnum á fjarkönnunarráðstefnu 2027

Alþjóðlega ráðstefnan International Geoscience and Remote Sensing Symposium (IGARSS) verður haldin í Reykjavík sumarið 2027. Ætla má að yfir 2.500 virtir vísindamenn og fagfólk á sviði fjarkönnunar frá öllum heimshornum sæki ráðstefnuna.
IGARSS-ráðstefnan er haldin á vegum IEEE Geoscience and Remote Sensing Society (GRSS), alþjóðlegs félags á sviði fjarkönnunar. Það er eitt 39 félaga innan Institute of Electrical and Electronics Engineers (IEEE), stærsta fagfélag rafmagns- og tölvuverkfræðinga í heiminum með yfir 500 þúsund meðlimi. GRSS var stofnað árið 1961 og og aðild að því eiga yfir 9.000 meðlimir í 94 löndum. Það vinnur að því að efla rannsóknir, hagnýtingu og menntun á sviði fjarkönnunar í þágu samfélaga, en fjarkönnun felst í því að taka stafrænar myndir úr flugvélum, drónum og gervitunglum og vinna úr þeim margs konar upplýsingar um yfirborð jarðar og breytingar á því.
IGARSS 2027 fer fram dagana 11.–16. júlí 2027 í Hörpu og Háskóla Íslands. Meginþema ráðstefnunnar, sem ber yfirskriftina „Global Vision for a Changing Planet“, hverfist um aukinn skilning á og viðbrögð við umhverfisáskorunum á alþjóðavettvangi með aðferðum fjarkönnunar. Sérstök áhersla er lögð á miklar áskoranir á norðurslóðum vegna loftslagsbreytinga, þar á meðal bráðnun íss, en áhrifa breytinganna gætir langt út fyrir norðurskautið og raunar um alla plánetuna. Á dagskrá ráðstefnunnar eru kynningar á rannsóknarniðurstöðum, fyrirlestrar og umræðufundir þar sem áhersla er á fjarkönnun og úrvinnsluaðferðir fyrir fjarkönnunargögn.
Aðalstyrktaraðili IGARSS 2027 er Háskóli Íslands en fleiri innlendar og erlendar stofnanir koma að ráðstefnunni. Í undirbúningsnefnd ráðstefnunnar eru alþjóðlegir sérfræðingar í fjarkönnun undir forystu Jóns Atla Benediktssonar, fyrrverandi rektors Háskóla Íslands, og Gabriele Cavallaro dósents og Magnúsar Arnar Úlfarssonar prófessors, sem báðir starfa við Háskóla Íslands.
