Vísindi á vordögum - vel heppnuð ráðstefna HÍ og Landspítala

Dagana 8. og 9. apríl 2026 fór í fyrsta sinn fram sameiginleg ráðstefna Háskóla Íslands og Landspítala undir heitinu Vísindi á vordögum. Áður hafði Landspítalinn haldið sína eins dags ráðstefnu árlega undir sama heiti í einum sal og Heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands haldið sína tveggja daga Líf- og heilbrigðisvísindaráðstefnu á tveggja ára fresti.
Að þessu sinni sameinuðu þessar mikilvægu stofnanir í íslensku samfélagi krafta sína og úr varð tveggja daga ráðstefna á Hilton Nordica í fjórum fundarsölum þar sem kynntar voru yfir 180 rannsóknir á sviði heilbrigðisvísinda, málstofurnar voru 36 og gestir ráðstefnunar í kringum 450 talsins. Haldnir voru opnir fyrirlestrar ætlaðir almenningi um brýnar lýðheilsu áskoranir, offitu og kulnun, sem voru geysilega vel sóttir og margt fleira áhugavert var á dagskrá. Meðal annars greindi Katrín Jakobsdóttir, fyrrverandi forsætisráðherra, frá spennandi áætlunum um að efla enn frekar vísindasamvinnu Háskóla Íslands og Landspítala í gegnum Heilbrigðisvísindastofnun.
Viðurkenningar og styrkir
Í lok ráðstefnunar var þremur ungum vísindamönnum afhentar viðurkenningar fyrir sérstaklega áhugaverðar rannsóknir. Þau sem hlutu viðurkenningar voru:
Verðlaun Heilbrigðisráðuneytisins:
Adam Bauer, náttúrufræðingur og doktorsnemi: Ópíóíðar, ketamín og 4-CMC í frárennsli höfuðborgarsvæðisins: Mat á neyslu yfir tveggja ára tímabil.
Styrktarsjóður rannsóknastofu í lyfja- og eiturefnafræðum:
Erna María Jónsdóttir, doktorsnemi: Extracellular Vesicle Engineering for Precision Targeting of EGFR1+ Triple-Negative Breast Cancer.
Hvatningaverðlaun Jóhanns Axelssonar:
Sindri Gíslason, doktorsnemi: Beyond the Lesion: Circuit-Wide Microglial Responses to Focal White Matter Injury.
Hans Tómas Björnsson, Ingibjörg Gunnarsdóttir, Jóhanna Gunnarsdóttir, Siggeir Fannar Brynjólfsson og Sigurdís Haraldsdóttir hlutu Hvatningastyrki úr Vísindasjóði Landspítala. Með þeim á myndinni eru Runólfur Pálsson, forstjóri Landspítala og Karl Andersen, formaður Vísindaráðs. Mynd/Kristinn Ingvarsson

Afhentir voru 33 styrkir úr Vísindasjóði Landspítala. Fimm fengu Hvatningastyrki sem hljóðuðu upp á 6 milljónir hver í þrjú ár en almennu styrkirnir, sem voru alls 27, hljóðuðu upp á 2 milljónir hver á ári í þrjú ár.
Hvatningastyrki hlutu:
- Hans Tómas Björnsson, prófessor og yfirlæknir: Role of the m6A system in regulating the testicular MHR and fertility (m6A-MHR-fertility)
- Ingibjörg Gunnarsdóttir, prófessor: Infant consumption of commercial baby foods, gut microbiome and metabolomic profile from 12 months to 5 years of age
- Jóhanna Gunnarsdóttir, sérfræðilæknir og prófessor: Unraveling placental malperfusion: From clinical patterns to translational solutions
- Siggeir Fannar Brynjólfsson, dósent og náttúrufræðingur: Pancreatic cancer screening in high-risk individuals
- Sigurdís Haraldsdóttir, yfirlæknir og prófessor: Pancreatic cancer screening in high-risk individuals
