Skip to main content
11. desember 2025

Vísindavefur HÍ fær styrk frá stjórnvöldum til að uppfæra Evrópuvefinn

Vísindavefur HÍ fær styrk frá stjórnvöldum til að uppfæra Evrópuvefinn - á vefsíðu Háskóla Íslands

Vísindavefurinn hefur fengið fimm milljóna króna styrk frá stjórnvöldum til að uppfæra Evrópuvefinn en hann var upphaflega settur á laggirnar árið 2011. 

Stjórnvöld tilkynntu nýverið að þau hygðust veita Evrópuhreyfingunni og Heimssýn, hreyfingu sjálfstæðissinna í Evrópumálum, fjárstyrk upp á tíu milljónir króna hvor til að efla umræðu um kosti og galla aðildar að Evrópusambandinu (ESB). „Að auki hefur verið ákveðið að fimm milljónir króna renni til Vísindavefs Háskóla Íslands til uppfærslu á Evrópuvefnum, sem haldið hefur verið úti um árabil og gegnt hefur mikilvægu hlutverki hvað varðar upplýsingagjöf um ESB og Evrópumál í breiðara samhengi. Vefurinn starfar eftir eigin stefnu og lútir ritstjórnarlegu sjálfstæði. Tilgangur hans er að veita hlutlægar, málefnalegar og trúverðugar upplýsingar um ESB; sögu þess, löggjöf sambandsins og réttarframkvæmd, skipulag og stjórnsýslu, stefnu og áætlanir,“ segir á vef Stjórnarráðs Íslands

Evrópuvefurinn var opnaður í júní 2011 og til hans var stofnað með þjónustusamningi milli Alþingis og Vísindavefs Háskóla Íslands. Fjármagn til vefsins kom frá Alþingi til ársloka 2013.

Evrópuvefurinn er upplýsingaveita um Evrópusambandið og Evrópumál og tilgangur hans fyrst og fremst að veita hlutlægar upplýsingar um stofnanir og stefnumál ESB, aðildarríki sambandsins og aðildarumsókn Íslands. Evrópuvefurinn er nátengdur Vísindavef HÍ og byggir á sömu einföldu hugmynd: að svara spurningum lesenda á skýran og skilmerkilegan hátt.

Á árunum 2011 til 2013 skrifaði starfsfólk Evrópuvefsins og fjölmargir aðrir fræðimenn um 750 færslur, aðallega svör við spurningum almennings, en einnig er þar birtur tímaás um Evrópusambandið, aðdraganda þess og umhverfi, yfirlit yfir aðildarsögu sambandsins og helstu stofnanir og sáttmála.

Frá því að þjónustusamningur milli Alþingis og Vísindavefs HÍ rann út hefur Vísindavefurinn séð um rekstur og hýsingu á vefsvæðinu en ekki hefur gefist kostur á að halda efninu við, uppfæra svör, bæta við nýju efni eða uppfæra útlit vefsins. Það er mikið fagnaðarefni að stjórnvöld geri sér grein fyrir mikilvægi Evrópuvefsins og því hlutverki sem hann gegnir.

Stefnt er að því að uppfærður vefur muni líta dagsins ljós á fyrri hluta ársins 2026. Þar er gert ráð fyrir nýrri tækni, til að mynda gervigreindarstýrðri uppflettingu og textasvörun. Meginhlutverk endurbætts og nútímavædds Evrópuvefs verður hið sama og áður: að veita hlutlægar og trúverðugar upplýsingar um Evrópumál í því skyni að efla málefnalegar umræður um Evrópusambandið.

Mynd af Evrópuvefnum