Skip to main content
24. ágúst 2026

Varði doktorsritgerð um táknrænt hlutverk dýra á öld útrýmingar

Varði doktorsritgerð um táknrænt hlutverk dýra á öld útrýmingar - á vefsíðu Háskóla Íslands

Katla Kjartansdóttir hefur varið doktorsritgerð sína í menningarfræði, Animals on display in an Age of Extinction, við Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands. Doktorsritgerðin var unnin undir leiðsögn Bryndísar Snæbjörnsdóttur, prófessors við Listaháskóla Íslands. Einnig voru í doktornefnd Jón Ólafsson, prófessor við Háskóla Íslands, Hester Dibbits, prófessor við Erasmus Háskóla Rotterdam og Katrín Anna Lund, prófessor við Háskóla Íslands.

Andmælendur við vörnina voru Dehlia Hannah, dósent við Kaupmannahafnarháskóla og Cecilia Åsberg, prófessor við Linköping háskóla. Ásgrímur Angantýsson, forseti Íslensku- og menningardeildar, stjórnaði athöfninni sem fór fram í Öskju, föstudaginn 21. ágúst.

Um rannsóknina

Rannsóknin greinir táknrænt hlutverk lifandi dýra en einnig í formi safngripa, listmuna, minjagripa og táknmynda nú á öld útrýmingar. Ritgerðin varpar meðal annars ljósi á hvernig lundinn hefur tekið þátt í að markaðssetja Ísland þar sem lögð er áhersla á hreina og óspillta náttúru og tækifæri til að komast í nána snertingu við villt dýra- og fuglalíf. Lögð er áhersla á að nálgast dýr, sem virka gerendur með eigin bakgrunn, atbeini og áhrifavald. Þá varpar ritgerðin ljósi á hvernig loftslagsbreytingar og útrýming dýrategunda, hafa umbreytt sambandi mannfólks og dýra. Rannsóknin undirstrikar mikilvægi menningar og skapandi lista þegar kemur að því að takast á við helstu samfélags- og umhverfisáskoranir okkar samtíma, á borð við útrýmingu dýrategunda, þvert á tegundir og önnur mæri.

Um doktorinn

Katla Kjartansdóttir er með BA próf í þjóðfræði frá Háskóla Íslands og mastersgráðu í þjóðernisfræðum frá Edinborgarháskóla. Hún hefur tekið þátt í fjölmörgum þverfaglegum og þverþjóðlegum rannsóknarverkefnum og verið stundakennari við Háskóla Íslands í um 20 ár, með hléum. Þá hefur hún einnig starfað á vettvangi menningar og safna um langt skeið.

Katrín Anna Lund, Ásgrímur Angantýsson, Cecilia Åsberg, Katla Kjartansdóttir, Dehlia Hannah, Haraldur Bernharðsson og Jón Ólafsson.