Skip to main content
9. mars 2026

Varði doktorsritgerð um birtingarmyndir reiði í bókmenntum

Varði doktorsritgerð um birtingarmyndir reiði í bókmenntum - á vefsíðu Háskóla Íslands

Rósa María Hjörvar hefur varið doktorsritgerð sína í almennri bókmenntafræði, Mælskur af bræði: Reiði, heimsveldi og nýlenduminni í íslenskum nútímabókmenntum, við Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands. Doktorsritgerðin var unnin undir leiðsögn Gunnþórunnar Guðmundsdóttur, prófessors í almennri bókmenntafræði við Háskóla Íslands. Einnig voru í doktorsnefnd Kristinn Helgi Magnússon Schram, dósent í þjóðfræði við Háskóla Íslands, og Sif Ríkharðsdóttir, prófessor í almennri bókmenntafæði við Háskóla Íslands.

Andmælendur við vörnina voru Haukur Ingvarsson, lektor við Háskóla Íslands, og Sólveig Ásta Sigurðardóttir, nýdoktor við Háskóla Íslands. Gauti Kristmannsson, deildarforseti Íslensku- og menningardeildar, stjórnaði athöfninni sem fór fram í Hátíðasal í Aðalbyggingu Háskóla Íslands, föstudaginn 6. mars.  

Um rannsóknina

Í ritgerðinni er unnið með birtingarmyndir reiði í þremur íslenskum verkum, Tómasi Jónsyni metsölubók (1966) eftir Guðberg Bergsson, Innansveitarkroniku (1970) eftir Halldór Laxness og Höfundi Íslands (2001) eftir Hallgrím Helgason. Reiði í verkunum er skoðuð í ljósi eftirlendufræða með áherslu á minni heimsveldisins og nýlendunnar. Í greiningunni er unnið með hugmynd um gróteska reiði og reynt að skýra menningarleg tengsl hennar og virkni innan texta. 

Um doktorinn

Rósa María Hjörvar lauk BA-prófi í almennri bókmenntafræði með fornleifafræði sem aukagrein við Syddansk Universitet og meistaraprófi í almennri bókmenntafræði við Kaupmannahafnarháskóla. Hún starfar sem stafrænn verkefnastjóri og sinnir stundakennslu við Háskóla Íslands.

Gunnþórunn Guðmundsdóttir, Gauti Kristmannsson, Haukur Ingvarsson, Rósa María Hjörvar, Sólveig Ásta Sigurðardóttir, Ólöf Garðarsdóttir, Sif Ríkharðsdóttir og Kristinn Helgi Magnússon Schram.