Skip to main content
18. mars 2026

Tuttugu verkefni tengd samtali við samfélagið fá styrk

Tuttugu verkefni tengd samtali við samfélagið fá styrk - á vefsíðu Háskóla Íslands

Fróðleikur um köngulær fyrir almenning, þáttaröð um samlífi manna og örvera, kennslustofa í sjávarrannsóknum, bók fyrir almenning um heilann og virkni hans, verkefni tengt sampili dagbóka- og sjálfsævisöguskrifa og vinnustofa og handbók tengd innleiðingu farsældarlaga eru meðal þeirra verkefna sem fá styrk úr sjóði við Háskóla Íslands sem ætlað er að styðja við samtal vísindamanna skólans við samfélagið og miðlun rannsókna. Alls fá 20 verkefni styrk að þessu sinni.

Þetta er í sjöunda sinn sem styrkir eru veittir úr sjóðnum sem ætlað er að efla samfélagsleg áhrif starfs HÍ. Með stuðningnum er leitast við að gefa vísindafólki skólans aukið svigrúm til samtals við samfélagið í krafti rannsókna sinna og sérþekkingar. 

Samtals bárust 62 umsóknir um styrki úr sjóðnum að þessu sinni en sem fyrr segir fengu 20 verkefni styrk, samanlagt að upphæð 10 milljónir króna. Styrkþegar starfa á öllum fimm fræðasviðum skólans og einnig við rannsóknarsetur hans víða um land.

Verkefnin eru m.a. á sviði félagsfræði, stjórnmálafræði, þjóðfræði, sálfræði, matvæla- og næringarfræði, heimspeki, tungumála og menningar, menntunarfræða, líffræði, jarðskjálftafræði og vélaverkfræði og eru af ýmsu tagi, m.a. í formi hlaðvarpa, bóka, þáttaraða, málþinga og vinnustofa, myndbanda, vefsíðna og kennsluefnis. 

Yfirlit yfir styrkt verkefni má finna hér.
 

""