Til sumarnáms við Columbia-háskóla
Fjórir nemendur Háskóla Íslands halda senn til sumarnáms við Columbia-háskóla í New York-borg í Bandaríkjunum. Þetta eru Ásgeir Kári Ásgeirsson, nemi í fjármálum, Jóhanna Margrét Sigurðardóttir, nemi í hagnýtri sálfræði, Sigurbjörn Bernharð Edvardsson, nemi í lögfræði, og Veronika Guðmundsdóttir Jónsson, nemi í sagnfræði.
Þetta er fimmta árið sem sumarnám við Columbia-háskóla býðst nemendum Háskóla Íslands, en fyrri þátttakendur hafa borið mikið lof á námið. Námstímabilið er sex vikur og taka nemendur námskeið sem þeir fá metin til eininga í námi sínu við Háskóla Íslands.
Columbia-háskóli er í hópi Ivy League-háskólanna svonefndu í Bandaríkjunum, en það eru átta rótgrónir og virtir háskólar sem hafa raðað sér efst á lista yfir bestu skóla í heimi.