Skip to main content
28. ágúst 2026

„Tengsl verða til þegar fólk hittist“

„Tengsl verða til þegar fólk hittist“ - á vefsíðu Háskóla Íslands

„Ég vil fyrst og fremst vera virkur málsvari alþjóðanema, hlusta á reynslu þeirra og vinna að lausnum með þeim,“ segir Cynthia Anne Namugambe, nýr alþjóðafulltrúi Stúdentaráðs Háskóla Íslands. Hún vill leggja sérstaka áherslu á að gera nemendum auðveldara að nýta þá þjónustu og þau tækifæri sem þeim standa til boða, efla tengsl íslenskra og alþjóðlegra nemenda og tryggja að rödd alþjóðanema heyrist innan háskólasamfélagsins.

Cynthia er nemandi í rafmagns- og tölvuverkfræði og hefur tekið virkan þátt í félags- og jafnréttisstarfi innan skólans. Hún hefur meðal annars starfað sem aðstoðarmaður í Spretti, setið í alþjóðanefnd SHÍ, sviðsráði Verkfræði- og náttúruvísindasviðs og jafnréttisnefnd sviðsins auk þess að hafa verið alþjóðafulltrúi Röskvu. Í gegnum þessi störf segist hún hafa fengið góða innsýn í málefni alþjóðlegra nemenda og nemenda með erlendan bakgrunn við HÍ.

Cynthia flutti frá Úganda til Íslands árið 2015, þá tíu ára gömul, og segir eigin reynslu hafa mótað sýn sína á mikilvægi þess að fólk fái góðar upplýsingar, stuðning og tækifæri til að mynda tengsl þegar það kemur inn í nýtt samfélag.

„Ég hef sjálf verið heppin með mentora og samfélagið í kringum mig sem hefur átt stóran þátt í að koma mér á þann stað sem ég er á í dag. Þess vegna skil ég vel hvað það skiptir miklu máli að skapa gott samfélag og hafa tengilið sem hægt er að leita til.“

Vill tryggja gott samtal og upplýsingaflæði

Alþjóðafulltrúi SHÍ gætir hagsmuna alþjóðlegra nemenda, styður við þátttöku þeirra í háskólasamfélaginu og er tengiliður milli nemenda, SHÍ, Alþjóðasviðs og annarra aðila innan HÍ. Alþjóðafulltrúi er jafnframt fulltrúi SHÍ í Aurora-samstarfinu og vinnur náið með Alþjóðasviði.
Cynthia vill byggja áfram á því starfi sem þegar er unnið í þágu alþjóðanema og meðal annars stuðla að því að nemendur eigi auðvelt með að finna upplýsingar um þjónustu, félagslíf og önnur praktísk atriði. Jafnframt vill hún tryggja að sjónarmið þeirra skili sér áfram inn í umræðu og stefnumótun.

„Ég vil stuðla að því að upplýsingar um þjónustu og tækifæri innan HÍ komist vel til alþjóðanema og um leið tryggja að reynsla þeirra og sjónarmið skili sér áfram til þeirra sem koma að þjónustu og ákvarðanatöku innan skólans.“

Fleiri tækifæri til að mynda tengsl

Eitt helsta áherslumál Cynthiu er að efla tengsl íslenskra og alþjóðlegra nemenda. Hún vill vinna með nemendafélögum og nemendahreyfingum að viðburðum þar sem hóparnir fá tækifæri til að hittast og kynnast.

„Ég vil leggja áherslu á að alþjóðanemar séu ekki aðeins boðnir á sérstaka viðburði fyrir alþjóðanema heldur verði þeir líka hluti af almennu félagslífi HÍ. Það er mikilvægt að skapa rými þar sem íslenskir og alþjóðlegir nemendur hittast sem jafningjar.“

Fram undan eru meðal annars verkefni tengd móttöku nýrra skiptinema og mentorverkefni í samstarfi við Alþjóðasvið og allskonar skemmtilegir viðburðir. Síðar á misserinu verða árlegir Alþjóðadagar Háskóla Íslands haldnir þar sem nemendum HÍ gefst tækifæri á að kynna sér ótal möguleika á námsdvöl erlendis, svo sem skiptinám, starfsþjálfun og styttri námsdvalir. Dagskráin er skipulögð af Alþjóðasviði í samstarfi við alþjóðanefnd SHÍ. Alþjóðadagarnir varpa jafnframt ljósi á alþjóðlegt starf og fjölbreytileika háskólasamfélagsins og skapa tækifæri fyrir íslenska og alþjóðlega nemendur til að hittast og mynda tengsl.

Cynthia er hér ásamt Kötlu Ólafsdóttur, forseta Stúdentaráðs, á móttöku fyrir nýja skiptinema sem fram fór í vikunni. MYND/Kristinn Ingvarsson

Aurora opnar dyr að alþjóðlegu samstarfi

Sem alþjóðafulltrúi SHÍ tekur Cynthia einnig þátt í Aurora-samstarfinu fyrir hönd Stúdentaráðs. Hún segir samstarfið skapa nemendum tækifæri til alþjóðlegs samstarfs, nýrrar reynslu og tengslamyndunar.

„Mér finnst mikilvægt að nemendur viti hvaða tækifæri felast í Aurora og hvernig þeir geta nýtt sér þau. Slíkt samstarf getur hjálpað nemendum að sjá námið sitt í stærra samhengi og tengjast fólki og hugmyndum víðar að.“

Hvetur nemendur til að taka þátt

Cynthia á að lokum einfalt ráð til nýrra alþjóðanema um að vera óhræddir við að spyrja og taka þátt frá byrjun.

„Það er eðlilegt að vita ekki allt strax þegar maður kemur í nýtt land og nýtt háskólaumhverfi. Mætið á viðburði, talið við fólk og nýtið ykkur þá þjónustu sem er í boði. Það getur breytt upplifuninni mjög mikið og hjálpað manni að mynda gott tengslanet.“

Alþjóðanemar geta haft samband við Cynthiu í gegnum internationalcommittee@hi.is. Hún er jafnframt með viðtalstíma á skrifstofu Stúdentaráðs á 3. hæð Háskólatorgs á mánudögum kl. 15-17 og þriðjudögum kl. 13-15.

Uppáhaldsstaður Cynthiu á háskólasvæðinu er Háskólatorg. „Þar finnur maður svo vel fyrir lífinu og fjölbreytileikanum í háskólanum. Þar hittast nemendur úr ólíkum deildum, fólk er að læra, fá sér mat í Hámu eða fara á viðburði.“

Um leið og við bjóðum Cynthiu velkomna til starfa þökkum við Önnu Sóleyju Jónsdóttur fyrir ánægjulegt samstarf á liðnu skólaári.

Cynthia Anne Namugambe