Skip to main content
12. júní 2025

Táknræn kveðjustund Menntavísindasviðs í Stakkahlíð 

Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands

Kveðjuathöfn Menntavísindasviðs HÍ í Stakkahlíð var haldin 11. júní í tilefni af flutningum sviðsins í Sögu í sumar. Kveðjuathöfnin var haldin í garðinum við byggingu Menntavísindasvið við Stakkahlíð sem var á sínum tíma byggð til að hýsa Kennaraháskóla Íslands og tekin í notkun árið 1962.

Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, hélt ávarp og fagnaði þessum merku tímamótum. „Með þessum áfanga verður ekki aðeins efnt heitið sem gefið var með formlegri sameiningu Kennaraháskóla Íslands og Háskóla Íslands, heldur opnast jafnframt ný og spennandi tækifæri til aukinnar faglegrar og félagslegrar sameiningar. Því það er nú einu sinni svo að við erum líkamlegar og félagslegar verur og það skiptir öllu máli að geta hist, blandað geði og skipst á skoðunum,“ sagði rektor.

Að ávarpi loknu dró rektor fána Háskóla Íslands niður í Stakkahlíð við táknræna athöfn undir ljúfum tónum Lúðrasveitar Hafnarfjarðar.

Ólafur Proppé, fyrrverandi rektor Kennaraháskóla Íslands, hélt einnig ávarp þar sem hann minntist m.a. þess þegar Kennaraháskóli Íslands sameinaðist Háskóla Íslands árið 2008. Þessi tímamót, flutningur Menntavísindasviðs í Sögu, væru lokahnykkur sameiningarinnar. Hann óskaði starfsfólki velfarnaðar og minnti á hve mikilvægur þessi flutningur væri til að ljúka sameiningu stofnanna. Í ávarpi sínu sagði Kolbrún Þ. Pálsdóttir, forseti Menntavísindasviðs, að flutningur sviðsins væri ljúfsár og að mörg ættu góðar minningar frá samfélagi  sem skapaðist bæði í Stakkahlíð og Skipholti, sem hefur hýst list- og verkgreinakennslu og skrifstofur fræðafólks um árabil. Fram undan biði starfsfólks sviðsins að grípa ný tækifæri á nýjum stað.

Við lok athafnar þakkaði Kolbrún Jóni Atla Benediktssyni rektor Háskóla Íslands fyrir hans dýrmæta framlag til þessa stóra verkefnis að flytja Menntavísindasvið í Sögu.  Hún færði honum jafnframt blómvönd í þakklætisskyni fyrir gott samstarf um árabil en Jón Atli lætur senn af störfum eftir tíu ár í embætti rektors. Kolbrún notaði einnig tækifærið og kvaddi starfsfólk sem nýverið lét af störfum við Menntavísindasvið. Þau eru: Hanna Óladóttir, Gunnar Börkur Jónasson, Ragnheiður Júníusdóttir og Jóna Guðbjörg Ingólfsdóttir.

Kveðjuathöfninni var spyrnt saman við vorgleði Starfsmannafélags Menntavísindasviðs sem bauð upp á veitingar og leiðsögn Sigrúnar Ingu - Perlufesti, í Hljómskálagarðinum.

Myndir tók Kristinn Ingvarsson

Kolbrún Þ. Pálsdóttir, Jón Atli Benediktsson og Ólafur Proppé
Fáni dreginn niður
Kveðjuathöfn og vorhátíð Menntavísindasviðs
Jóna Guðbjörg Ingólfsdóttir, Gunnar Börkur Jónasson, Hanna Óladóttir og Ragnheiður Júníusdóttir.
Meðlimir Lúðrasveitar Hafnarfjarðar
Kveðjuathöfn og vorhátíð Menntavísindasviðs
Meðlimir Lúðrasveitar Hafnarfjarðar
+6

Kolbrún Þ. Pálsdóttir, Jón Atli Benediktsson og Ólafur Proppé