Skip to main content
23. febrúar 2026

Sýning um evrópsk miðaldatungumál og bókmenntir

Sýning um evrópsk miðaldatungumál og bókmenntir - á vefsíðu Háskóla Íslands

Sýningin Medieval Languages and Literatures hefur verið opnuð í Eddu, húsi íslenskunnar. Tilgangur sýningarinnar er að fræða um öll þau tungumál sem voru rituð í Evrópu á miðöldum og þær bókmenntir sem voru skapaðar á þessum fjölmörgu tungumálum. Meðal þeirra má nefna latínu, fornfrönsku, fornensku, fornslavnesk mál, hebresku og svo auðvitað norrænu. Markmið sýningarinnar er að vekja gesti til vitundar um menningarlega fjölbreytni á miðöldum og hún er hönnuð til að veita sem mestar upplýsingar um tungumálaflóru Evrópu á þessum tímum, og ekki síst um hin ríkulega bókmenntaarf sem álfa okkar státar af.

Torfi Tulinius, prófessor við Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands og einn af skipuleggjendum sýningarinnar, segir að sýningin sé afrakstur samstarfs Háskóla Íslands við fjóra evrópska háskóla og að starf við undirbúning sýningarinnar hafi verið mjög gefandi: „Það var virkilega skemmtilegt að átta sig á öllum þeim fjölda tungumála sem rötuðu á bókfell á miðöldum, og eins hvað mikið var um þýðingar milli mála á þessum tíma. Það setur bókmenntaarf okkar í samhengi við evrópska menningu á upplýsandi og gagnlegan hátt.“

Skólarnir sem standa að sýningunni eru Háskóli Íslands, Syddansk universitet í Óðinsvém í Danmörku, Univerzita Karlova í Prag í Tékklandi, Central European University í Vínarborg í Austurríki, og National University of Ireland. 

Sýningin mun standa til 4. mars og aðgangur er ókeypis.

Torfi Tulinius, prófessor við Íslensku- og menningardeild og einn af skipuleggjendum sýningarinnar í Eddu.