Skip to main content
22. maí 2026

Sviðsþing Menntavísindasviðs: Frá flutningum til framtíðar í Sögu

Jóhanna Einarsdóttir, Kolbrún Þ. Pálsdóttir og Jón Torfi Jónasson.

„Nýr kafli í Sögu MVS - frá flutningum til framtíðar“ var yfirskrift sviðsþings Menntavísindasviðs 13. maí 2026 þar sem farið var yfir vegferð sviðsins í Sögu, frá sögulegum flutningum yfir í framtíðarsýn fyrir starfsemi sviðsins. Þetta var annað sviðsþingið sem haldið var í Sögu og markaði jafnframt lok fyrsta heila skólaárs sviðsins í byggingunni.Svavar Jósefsson, rekstrar- og þjónustustjóri Menntavísindasviðs, var fundarstjóri og flutti opnunarávarp. Hann rakti stuttlega sögu byggingarinnar og hvernig tækifæri skapaðist í kjölfar lokunar hótelreksturs á COVID-tímanum fyrir Háskólann að eignast bygginguna fyrir starfsemi Menntavísindasviðs. Ýmsar óvæntar áskoranir komu upp, ekki síst kom í ljós að framkvæmdir reyndust umfangsmeiri og tímafrekari en upphaflega var áætlað. Þá voru gerðar kröfur um innleiðingu verkefnamiðaðra vinnurýma sem var sannarlega umdeilt, en virðist að mati flestra hafa heppnast ágætlega þar sem hönnunin var aðlöguð að þörfum háskólastarfsemi. Svavar lýsti því umfangsmikla samráðferli sem átti sér stað við þarfagreiningu, hönnun og undirbúning flutninganna. Stjórnendur og fulltrúar starfsfólk allra starfseininga mynduðu starfshóp um húsnæðismálin sem fundaði reglulega öll síðustu fjögur ár og tók þátt í að móta stefnuna og tryggja upplýsingaflæði. Þá hélt framkvæmdateymi sviðsskrifstofu um sjálfa flutningana, sem var sannarlega flókið verkefni en tókst með samstilltu átaki alls starfsfólks. Segja má að flutningarnir hafi einkennt og haft áhrif á alla starfsemi sviðsins síðustu árin. Því væri ákaflega ánægjulegt að lýsa þeim lokið og hægt að horfa nú til framtíðar og móta nýjan kafla í sögu Menntavísindasviðs.

Því næst bauð Kolbrún Þ. Pálsdóttir, forseti MVS, heiðurgestum og fyrrverandi forsetum sviðsins, Jóni Torfa Jónassyni og Jóhönnu Einarsdóttur, til sviðsforsetaspjalls. Jón Torfi var fyrsti forseti Menntavísindasviðs sem varð til árið 2008 með sameiningu Kennaraháskóla Íslands og Háskóla Íslands. Hann lýsti því hvernig fjármálahrun varð sömu vikuna og hann tók við starfi forseta, sem hafði veruleg áhrif á starfsemi sviðsins og Háskólans alls.  Jón Torfi nefndi að á sama tíma og sameining HÍ og KHÍ hefði átt sér stað hafi tekið gildi nýtt stjórnkerfi Háskólans sem skipt var í fimm fræðasvið. Markmiðið hefði verið að fræðasviðin tækju við stjórnsýslulegu hlutverki deildanna en það virtist í raun ekki hafa raungerst. Þrátt fyrir það sé ljóst að með tilkomu nýja sviðsins hafi menntavísindum verið gert verulega hátt undir höfði innan háskólans. 

Jóhanna Einarsdóttir tók við embætti forseta Menntavísindasviðs árið 2013 og gegndi því til ársins 2018. Hún minnti á að fyrir sameiningu Kennaraháskóla og HÍ hefði KHÍ áður sameinast öðrum menntastofnunum, þ.e. Íþróttaskólanum, Fósturskólanum, Þroskaþjálfaskóla Íslands og Hússtjórnarskólanum. Það hafi verið brýnt langtímaverkefni að samþætta hin nýju fag- og fræðasvið og að nýtt deildarskipulag sem tók gildi 2018 hafi verið umdeilt en mikilvægt skref í þá átt. Jóhanna lagði einnig ríka áherslu á sókn á sviði rannsókna sem var nauðsynleg. Jón Torfi og Jóhanna óskuðu að lokum starfsfólki Menntavísindasviðs innilega til hamingju með flutninginn og glæsilega aðstöðu í Sögu.

Berglind Gísladóttir dósent stýrði síðan pallborðsumræðum deildaforseta en það eru þær Berglind Rós Magnúsdóttir, Elsa Eiríksdóttir, Svava Pétursdóttir og Þórdís Lilja Gísladóttir. Þær ræddu mikilvægi þess að vera flutt í Sögu og töldu almenna ánægju deildarfólks og nemenda með nýja aðstöðu náms og kennslu. Verkefnið fram undan  væri að fylla húsið af nemendum og nýta þessa frábæru aðstöðu. Fram kom að mikilvægt væri að nú væri allt starfsfólk sameinað undir einu þaki og að það skipti miklu til að leggja grunn að góðu starfssamfélagi og tengslum milli starfsfólks og starfseininga.  

Eftir kaffihlé leiddi Hróbjartur Árnason, kennsluþróunarstjóri sviðsins, skapandi vinnu þar sem þátttakendur voru hvattir til að velta upp brjáluðum, ýktum og ögrandi hugmyndum um næsta kafla í Sögu MVS og fékk sköpunargleðin sannarlega að njóta sín. Til stendur að útbúa rit með þeim fjölmörgu hugmyndum sem fram komu til að nýta í stefnumótun og starfsáætlun sviðsins.

Í lokaávarpi sínu nýtti Kolbrún Þ. Pálsdóttir jafnframt tækifærið til að þakka fyrir samstarf síðustu ára. Hún fagnaði þeim dýrmæta áfanga sem hefur náðst með flutningi MVS í Sögu og færði Svavari Jósefssyni rekstrarstjóra blóm og þakkir fyrir að hafa leitt það stóra verkefni að flytja alla starfsemi Menntavísindasviðs yfir í Sögu af fagmennsku og miklu jafnaðargeði. Hún tók fram að samhliða flóknum áskorunum síðustu ára hefði sviðsfólki tekist að ná eftirtektarverðum árangri á öllum sviðum, stórefla rannsóknarvirkni, fjölga nemendum og auka miðlun rannsókna og þátttöku í samfélagslegum verkefnum. Kolbrún tók á móti blómum og þökkum fyrir framlag sitt síðustu árin en hún lætur af störfum sem forseti Menntavísindasviðs í lok júní eftir átta ár í embætti. 

Að því loknu var gestum boðið upp á veitingar í Súlnasal ásamt lifandi tónlist.

Myndir: Kristinn Ingvarsson / Hróbjartur Árnason / Ólafur Rafnar Ólafsson 

Jóhanna Einarsdóttir, Kolbrún Þ. Pálsdóttir og Jón Torfi Jónasson.
Svavar Jósefsson.
Skapandi hópavinna.
Skapandi hópavinna.
Skapandi hópavinna.
Skapandi hópavinna.
Berglind Gísladóttir stýrði pallborði deildarforseta
Skapandi hópavinna.
Hróbjartur Árnason.
Skapandi hópavinna.
Skapandi hópavinna.