Skip to main content
19. febrúar 2026

Styrkur til verkefna sem styðja við íslenskunám fjöltyngdra barna

Styrkur til verkefna sem styðja við íslenskunám fjöltyngdra barna - á vefsíðu Háskóla Íslands

Íslenskusjóðurinn auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum á árinu 2026. Veittir eru styrkir til hagnýtra þróunarverkefna sem styðja við íslenskunám fjöltyngdra barna í leik- og grunnskólum og/eða foreldra þeirra.

Umsóknarfrestur er til og með 16. mars 2026.

Tilgangur sjóðsins er að veita styrki til að efla vald á íslensku máli barna og fullorðinna, einkum fjöltyngdra barna af erlendum uppruna og foreldra þeirra. Styrkir skulu veittir vegna verka sem styðja við og efla notkun á íslensku máli, svo sem þróunarverkefna, námskeiða og útgáfu einkum á leik- og grunnskólastigi. Upplýsingar um Íslenskusjóðinn má nálgast á vefsíðu sjóðsins.

Heildarfjárhæð úthlutaðra styrkja er allt að kr. 4.000.000. 

Í umsókninni þurfa eftirtalin atriði að koma fram: 
1.    Nafn umsækjanda, kennitala, heimilisfang, sími og virkt netfang.
2.    Heiti verkefnis, markmið, vísindalegt og hagnýtt gildi. 
3.    Hnitmiðuð lýsing á verkefninu, 2-3 málsgreinar, sem verður nýtt til almennrar umfjöllunar og kynningar, hljóti verkefnið styrk. 
4.    Veigameiri lýsing á verkefninu, ein blaðsíða að hámarki. Fram komi hvernig verkefninu er ætlað að auka við núverandi þekkingu á efninu og hvernig verkefnið samræmist markmiðum sjóðsins. Sé ætlunin að óska eftir stuðningi við hluta af stærra verkefni skal koma fram til hvaða þáttar sótt er um.
5.    Framkvæmdaáætlun með tímasetningum og greinargóðri lýsingu á framkvæmd verkefnisins, ein blaðsíða að hámarki.
6.    Sundurliðuð fjárhagsáætlun. Upplýsingar um annan fjárhagslegan stuðning við verkefnið.
7.    Yfirlit yfir helstu samstarfsaðila verkefnisins.
8.    Ferilskrá umsækjenda.
9.    Áætlun um kynningu niðurstaðna og sýnileika verkefnis.

Hámarkslengd umsóknar er þrjár síður auk ferilskrár. Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál. Stjórn áskilur sér rétt til að veita fleiri en einum umsækjanda styrk, hafna öllum og/eða úthluta styrkjum með öðrum hætti.

Styrkþegi skal gera grein fyrir stöðu verkefnisins að ári liðnu í framvinduskýrslu og láta fylgja sýnishorn/tilvísun í það sem hefur verið unnið. Að verkefni loknu skal skila lokagreinargerð um niðurstöður og árangur ásamt ráðstöfun fjárins og eigi síðar en tveimur árum frá styrkveitingu. Ef styrkur er ekki nýttur í samræmi við umsókn skal honum skilað. Ekki verður tekið við nýjum umsóknum frá þeim sem ekki hafa skilað framvinduskýrslu eða lokagreinargerð vegna fyrri styrkja á tilsettum tíma.

Áætlað er að úthlutað verði í apríl 2026.

Umsóknum skal skila sem viðhengi á netfang Styrktarsjóða Háskóla Íslands, sjodir@hi.is

Frekari upplýsingar er að finna á sjóðavef Háskóla Íslands, www.sjodir.hi.is, eða hjá Helgu Brá Árnadóttur, verkefnisstjóra Styrktarsjóða Háskóla Íslands, helgab@hi.is og Söru Margréti Ólafsdóttur, formanni stjórnar sjóðsins, saraola@hi.is.

Um sjóðinn

Íslenskusjóðurinn var stofnaður af Elsu Sigríði Jónsdóttur og Tómasi Gunnarssyni til minningar um foreldra þeirra, þau Sigríði S. Sigurðardóttur og Jón Sigurðsson og Björgu Tómasdóttur og Gunnar Guðmundsson. Íslensk tunga var þeim hjartfólgin og vildu þau veg hennar sem mestan.

Krítaðir stafir á stétt