Styrkir til doktorsnema á Menntavísindasviði

Styrktar- og rannsóknasjóður Þuríðar J. Kristjánsdóttur auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum. Tilgangur sjóðsins er að veita styrki til doktorsnema á Menntavísindasviði. Hægt er að sækja um styrki vegna ráðstefnuferða, námskeiða, alþjóðlegs samstarfs, tækjakaupa, launakostnaðar og kostnaðar við rannsóknir.
Umsóknarfrestur er til og með 16. febrúar 2026.
Við úthlutun verður sérstaklega litið til:
a. rannsóknarverkefna á sviði skólastarfs og kennslumála
b. þróunarverkefna sem efla fræðilegt og faglegt framlag á sviðinu
Hægt er að sækja um styrki vegna ráðstefnuferða, námskeiða, alþjóðlegs samstarfs, tækjakaupa, launakostnaðar og kostnaðar við rannsóknir.
Heildarupphæð úthlutaðra styrkja er allt að 2.000.000 kr.
Í umsókn um styrk þurfa eftirtalin atriði að koma fram:
- Nafn umsækjanda, kennitala, heimilisfang, sími og virkt netfang.
- Helstu atriði úr náms- og starfsferilsskrá umsækjanda.
- Heiti verkefnis, markmið og vísindalegt gildi.
- Hnitmiðuð lýsing á verkefninu, að hámarki 150 orð, sem verður nýtt til almennrar umfjöllunar og kynningar, hljóti verkefnið styrk.
- Veigameiri lýsing á verkefninu, að hámarki ein blaðsíða, þar sem fram koma verkþættir ásamt umfjöllun um hvernig verkefnið samrýmist markmiðum sjóðsins.
- Rannsóknaráætlun sem felur m.a. í sér verk- og tímaáætlun og fjárhagsáætlun
- Samstarfsaðilar verkefnis ef við á.
- Hvernig styrkurinn verður notaður, hljóti verkefnið styrk.
- Upplýsingar um annan fjárhagslegan stuðning.
- Nöfn, símanúmer og netföng mögulegra meðmælenda.
Hámarkslengd umsóknar skal vera þrjár síður fyrir utan fylgiskjöl. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál. Stjórn sjóðanna áskilur sér rétt til að veita fleiri en einum umsækjanda styrk, hafna öllum og/eða úthluta styrkjum með öðrum hætti.
Áhersla er lögð á vönduð fræðileg vinnubrögð við gerð umsóknar. Gert er ráð fyrir að styrkþegi skili sjóðnum skýrslu með helstu niðurstöðum og árangri af verkefninu þegar því lýkur.
Umsóknum skal skila sem viðhengi á netfang Styrktarsjóða Háskóla Íslands: sjodir@hi.is.
Frekari upplýsingar er að finna á vefsíðu sjóðsins á sjóðavef Háskóla Íslands.
Um sjóðinn
Styrktar- og rannsóknasjóður Þuríðar J. Kristjánsdóttur var stofnaður undir hatti Styrktarsjóða Háskóla Íslands árið 2019. Stofnframlag sjóðsins er gjöf Þuríðar Jóhönnu Kristjánsdóttur, fyrrverandi prófessors og aðstoðarrektors Kennaraháskóla Íslands, sem lést árið 2018. Í erfðaskrá sinni arfleiddi hún Háskóla Íslands að húseign sinni og öðrum eigum með það að markmiði að stofna styrktarsjóð.
Þuríður Jóhanna Kristjánsdóttir fæddist á Steinum í Stafholtstungum í Borgarfirði 28. apríl 1927. Hún lauk kennaraprófi við Kennaraskóla Íslands árið 1948 og var síðar við nám í Kennaraháskólanum í Kaupmannahöfn og Cambridge-háskóla í Englandi. Hún lauk BS-prófi frá Illinois-háskóla í Urbana árið 1968, meistaraprófi 1969 og doktorsprófi í menntasálarfræði frá sama skóla árið 1971. Hún hóf störf við Kennaraháskóla Íslands árið 1971 og varð fyrsti prófessor við skólann 1973. Þá gegndi hún starfi aðstoðarrektors Kennaraháskólans á árunum 1983-1987.
Þuríður lét af störfum við skólann árið 1989.
