Skip to main content
21. mars 2025

Sterk tengsl milli vestræns mataræðis á meðgöngu og ADHD og einhverfu

Sterk tengsl milli vestræns mataræðis á meðgöngu og ADHD og einhverfu - á vefsíðu Háskóla Íslands

Ný rannsókn alþjóðlegs hóps vísindafólks, þar á meðal við Háskóla Íslands, sýnir að mataræði sem einkennist af neyslu mikillar fitu, sykurs og unnins matar á meðgöngu getur aukið hættu á taugaþroskaröskunum eins og ADHD og einhverfu hjá börnum þeirra. Greint var frá niðurstöðum rannsóknarinnar í vísindatímaritinu Nature Metabolism á dögunum. Rannsóknin skapar tækifæri til að bæta og fylgja betur eftir ráðleggingum um mataræði til barnshafandi kvenna að sögn vísindahópsins.

Rannsóknin byggðist á greiningu gagna úr fjórum dönskum og bandarískum gagnabönkum sem hafa að geyma m.a. upplýsingar um neyslumynstur yfir 60 þúsund kvenna á meðgöngu og ADHD-greiningar í hópi barna þeirra. Jafnframt rannsakaði hópurinn blóðsýni úr bæði mæðrum og börnum og nýttu svokallaða umbrotsefnamengjafræði (e. metabolomics), sem snýst um að mæla styrk tilekinna efna í líkamanum, til þess að varpa skýrara ljósi á samband mataræðis við taugaþroskaraskanir. Þessu til viðbótar var í rannsókninni tekið tillit til fjölmargra þátta sem hafa áhrif á taugaþroskaraskanir, eins og erfða, en rannsóknir hafa sýnt að þær eiga stóran þátt í þróun slíkra raskana. 

Í rannsókninni fundust skýr tengsl tengsl á milli vestræns mataræðis hjá mæðrunum og ADHD og einhverfu hjá börnum þeirra, en vestrænt mataræði einkennist af mikilli neyslu á feitum, sykruðum og unnum mat en lítilli fisk-, grænmetis- og ávaxtaneyslu. Því frekar sem barnshafandi konur fylgdu hinu vestræna mataræði því meiri hætta var á því að barnið sem þær báru undir belti yrði greint með ADHD eða einhverfu. 

Vísindamennirnir benda á að jafnvel tiltölulega lítil breyting á mataræði móður í átt að því vestræna jók líkur á að barn greindist með ADHD um 66% og að það greindist með einhverfu um 122%. Að sama skapi geti sömu breytingar á mataræði í átt frá því vestræna mögulega dregið úr hættunni á taugaþroskaröskunum hjá börnum. Vísindamennirnir undirstrika að rannsóknin sýni fram á sterk tengsl milli mataræðis og taugaþroskaraskana en sanni ekki að vestrænt mataræði á meðgöngu valdi ADHD og einhverfu hjá börnum. 

Rannsóknin var unnin undir forystu vísindafólks við Kaupmannahafnarháskóla en meðal þátttakenda í henni var Þórhallur Ingi Halldórsson, prófessor við Matvæla- og næringarfræðideild HÍ. Hann er einn þeirra vísindamanna sem voru í forsvari fyrir söfnun þeirra gagna um mataræði sem rannsóknin byggist á og segir að hugmyndin að því að skoða fæðumynstur á meðgöngu hafa kviknað í samstarfi við erlenda kollega hans fyrir mörgum árum. MYND/Kristinn Ingvarsson

Niðurstöður geta nýst til að bæta næringarráðleggingar

Rannsóknin sýndi enn fremur að tengslin milli mataræðis mæðra á meðgöngu og hættu á ADHD hjá börnum þeirra voru sterkust á tveimur fyrstu þriðjungum meðgöngu (fyrstu sex mánuði meðgöngunnar). Þetta segja vísindamennirnir vera í samræmi við fyrri rannsóknir sem sýni að þroskun heila í fóstri sé sérstaklega viðkvæm fyrir umhverfisáhrifum snemma á meðgöngu. 

Rannsakendur benda enn fremur á að niðurstöðurnar styrki mikilvægi næringarráðlegginga til barnshafandi kvenna. Almennt er barnshafandi konum ráðlagt að neyta sama matar og öðru fólki þar sem áhersla er á grænmeti, heilkornafæðu og fisk. Rannsóknin veki hins vegar spurningar um hvort þeim ráðleggingum sé nægilega fylgt eftir á meðgöngu. Um leið veiti rannsóknin upplýsingar um það hvers konar fæða og fæðuflokkar geti gegnt mikilvægu hlutverki við þroskun heila í fóstri, upplýsingar sem mögulega mætti bæta inn í næringarráðleggingar til barnshafandi kvenna. 

Rannsóknin var unnin undir forystu vísindafólks við Kaupmannahafnarháskóla en meðal þátttakenda í henni var Þórhallur Ingi Halldórsson, prófessor við Matvæla- og næringarfræðideild HÍ. Hann er einn þeirra vísindamanna sem voru í forsvari fyrir söfnun þeirra gagna um mataræði sem rannsóknin byggist á og segir að hugmyndin að því að skoða fæðumynstur á meðgöngu hafa kviknað í samstarfi við erlenda kollega hans fyrir mörgum árum. „Með því að nota mörg gagnasöfn var hægt að sýna fram á að tengslin við vestrænt mataræði voru ekki bara bundin við eitt gagnsett heldur voru þetta tengsl sem sáust endurtekið. Þetta ásamt þeim metabolomics-mælingum sem nýttar voru í rannsókninni styrkir þær ályktanir sem dregnar eru í greininni,“ segir Þórhallur enn fremur.

Vísindagreinina, sem ber yfirskriftina „A Western dietary pattern during pregnancy is associated with neurodevelopmental disorders in childhood and adolescence“, má nálgast á vef Nature Metabolism.

Barnshafandi kona

Ný rannsókn alþjóðlegs hóps vísindafólks, þar á meðal við Háskóla Íslands, sýnir að mataræði sem einkennist af neyslu mikillar fitu, sykurs og unnins matar á meðgöngu getur aukið hættu á taugaþroskaröskunum eins og ADHD og einhverfu hjá börnum þeirra. MYND/Kristinn Ingvarsson