Skip to main content
12. febrúar 2026

Skrásetningargjald í Háskóla Íslands hækkað fyrir næsta skólaár

Skrásetningargjald í Háskóla Íslands hækkað fyrir næsta skólar - á vefsíðu Háskóla Íslands

Háskólaráð Háskóla Íslands samþykkti á fundi sínum í dag að gera breytingar á gjaldskrá skólans sem felur í sér hækkun á skrásetningargjaldi fyrir skólaárið 2026-2027 úr 75.000 kr. í 100.000 kr. Hækkunin tekur þegar gildi. 

Alþingi samþykkti skömmu fyrir áramót breytingu á 24. gr. laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla sem veitti háskólunum heimild til að hækka þak skrásetningargjalds síns úr 75.000 krónum í 100.000 krónur. Skrásetningargjald telst þjónustugjald en ekki skólagjald og er því ætlað að standa straum af kostnaði fyrir þá þjónustu sem skólinn veitir stúdentum utan kennslu.

Fjármálanefnd háskólaráðs fjallaði um þessar lagabreytingar Alþingis á fundi sínum nýverið og mögulega hækkun skrásetningargjalds. Nefndin bendir á að útreikningar úr bókhaldi HÍ sýni að til þess að skrásetningargjaldið hefði staðið fullkomlega undir þeim kostnaðarliðum sem fylgdu þjónustu við nemendur árið 2024 hefði það þurft að vera 180.049 kr. á hvern stúdent. Jafnvel þótt eingöngu væri miðað við verðlagsbreytingar frá síðustu hækkun skrásetningargjaldsins, sem var í apríl 2014, til apríl 2025 ætti gjaldið að vera um 115.000 kr.

Niðurstaða fjármálanefndar var því að leggja til við háskólaráð að nýta þá heimild sem Alþingi hefði veitt til að styrkja rekstrargrundvöll háskólans. Tillagan um breytingar á gjaldskrá skólans var samþykkt á fundi háskólaráðs í dag sem fyrr segir. Fulltrúar stúdenta greiddu atkvæði gegn tillögunni og segja m.a. í bókunum sínum að það sé óásættanlegt að hlutverk stúdenta sé að fjármagna Háskóla Íslands en ekki stjórnvalda.

„Það er auðvitað ósanngjarnt að þessi kostnaður falli á stúdenta og það er okkar verkefni að vinna með þeim að því að þrýsta á stjórnvöld um að fjármagna háskólastigið betur,“ segir Silja Bára R. Ómarsdóttir, rektor Háskóla Íslands.

Gjaldskrá Háskóla Íslands eftir breytingar á skrásetningargjöldum er svohljóðandi: 

  • Skrásetningargjald: kr. 100.000
  • Skrásetningargjald – nýskráning á vormisseri: kr. 75.000
  • Skrásetningargjald – gestanemandi á samningi: kr. 15.000
  • Skrásetningargjald – gestanemandi án samnings: kr. 30.000
  • Skrásetningargjald – í leyfi: kr. 15.000
  • Skrásetningargjald – úr leyfi: kr. 85.000

Lagt er 15% álag á skrásetningargjald sé það greitt utan auglýsts greiðslutímabils.

Öryrkjar fá 25% afslátt af skrásetningargjaldi.

Aðalbygging