Sannleikurinn skiptir máli

Ráðstefna með yfirskriftinni Truth Matters var haldin í Hátíðasal HÍ 4. maí síðastliðinn. Viðburðurinn var hluti af viðburðaröð víða um heim í tilefni af 25 ára afmæli alþjóðlegu samtakanna Scholars at Risk (SAR) en SAR hafa það að markmiði að styðja við akademískt frelsi og vernda fræðifólk á flótta vegna skoðana sinna.
Háskóli Íslands, sem er aðili að SAR, fékk þrjá fyrirlesara til að ræða við áhorfendur um stöðu háskóla og fræðifólks og þá ógn sem víða steðjar að akademísku frelsi og sjálfstæði háskóla. Erindin tókust á við ýmsa vinkla aðfarar að grundvallarmannréttindum, aukna valdbeitingu hins opinbera og upplýsingaóreiðu en þessi atriði fylgja gjarnan árásum á sjálfstæði háskóla.
Artem Ingmar Benediktsson, doktor í menntavísindum fór með fundarstjórn ráðstefnunnar en Silja Bára Ómarsdóttir, rektor Háskóla Íslands, opnaðir ráðstefnuna þar sem hún ræddi starfsemi SAR og þátttöku Háskóla Íslands í starfi samtakanna.
Hulda Þórisdóttir, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, tók fyrir stuðning við fræðafólk í erfiðri stöðu með áhrifamikilli dæmisögu sem hún setti í samhengi við starf SAR.
Valgerður Pálmadóttir, lektor í kennaradeild við Háskólann á Akureyri, ræddi mannréttindi og akademískt frelsi í samhengi við pólitískt samhengi og sögu.
Hafsteinn Einarsson, dósent í tölvunarfræði við Háskóla Íslands, setti umræðuna í samhengi við gervigreind, upplýsingaóreiðu og hlutverk háskóla í þessu öllu saman.
Að erindum loknum opnaði fundarstjóri fyrir spurningar úr sal og stjórnaði líflegum umræðum. Viðburðinum var streymt og hér er hægt að hlýða á ráðstefnuna í heild sinni.
Meðfylgjandi myndir tók Kristinn Ingvarsson







