Skip to main content
12. mars 2026

Samtal um nám og kennslu á Kennsludögum opinberu háskólanna

Samtal um nám og kennslu á Kennsludögum opinberu háskólanna - á vefsíðu Háskóla Íslands

Samtal nemenda og kennara um það hvað einkennir gott námskeið, kennsluþróun og nemendamiðuð háskólakennsla, vinnutól úr atvinnulífi fyrir verkefnadrifna verkfræðikennslu, viðurkenningar- og umbunarkerfi í háskólum ásamt sveigjanlegu fjarnámi er meðal þess sem verður til umfjöllunar á hinum árlegu Kennsludögum opinberu háskólanna sem fara fram dagana 13.-20. mars.

Þetta er í þriðja sinn sem opinberu háskólarnir standa saman að slíkri dagskrá sem hefur það að markmiði efla samtal um mikilvægi kennslu og kennsluþróunar á háskólastigi. 

Kennsludagar standa að þessu sinni í heila viku og boðið er upp á opna viðburði ýmist í streymi eða á staðnum eða hvort tveggja. Viðburðirnir snerta fjölbreytta anga kennslumála og þátttakendur eru bæði úr hópi kennara og nemenda. 

Sérstakir gestir Kennsludaga eru Steven Mintz, prófessor í sagnfræði við Texas-háskóla, sem heldur erindi á vegum Miðstöðvar framhaldssnáms og Åse Nygren, kennsluþróunarstjóri í Háskólanum í Blekinge og Malmö-háskóla, sem kemur að nokkrum viðburðum á vegum Kennslumiðstöðvar Háskóla Íslands. 

Hægt er að kynna sér dagskrá Kennsludaga á vef Háskóla Íslands en hún er sem fyrr opin öllum.

Kennari og nemendur