Skip to main content
31. mars 2026

Samstarf um Mannréttindaflokk í Nýsköpunarkeppni grunnskólanna 

Samstarfssamningur undirritaður um Mannréttindaflokk í Nýsköpunarkeppni grunnskólanna  - á vefsíðu Háskóla Íslands

Háskóli Íslands, fyrir hönd NýMenntar á Menntavísindasvið skólans og Nýsköpunarkeppni grunnskólanna (NKG og NKG+), ÖBÍ réttindasamtök og FabLab Hátúni 10C hafa undirritað þriggja ára samstarfssamning um að bæta við Mannréttindaflokki í Nýsköpunarkeppni grunnskólanna. 

Markmið samstarfsins er að auka vitund grunnskólabarna um málefni fatlaðs fólks og raunveruleika þess, jafnframt því að hvetja börn og ungmenni til nýsköpunar sem tengist áskorunum og tækifærum í lífi fatlaðs fólks. Sérstök áhersla er lögð á inngildandi hönnun, aðgengi og lausnir sem stuðla að samfélagslegri þátttöku og valdeflingu fatlaðs fólks, bæði í leik og starfi. 

Samstarfið felur jafnframt í sér þróun og miðlun kennslu- og fræðsluefnis fyrir grunnskóla um mannréttindi, fötlun og inngildandi hönnun. Við gerð námsefnisins verður lögð áhersla á samráð við fatlað fólk og tekið mið af sjónarmiðum þeirra. Námsefnið er ætlað að styðja kennara í kennslu og verkefnavinnu tengdri Mannréttindaflokki keppninnar. 

ÖBÍ leggur til verðlaunafé í Mannréttindaflokki að heildarupphæð allt að 300.000 krónur á samningstímabilinu, auk 700.000 kr. framlags til að bæta aðgengi að keppninni. NýMennt annast kynningu flokksins, styður nemendur við hugmyndaþróun og tryggir sýnileika ÖBÍ sem samstarfs- og styrktaraðila. FabLab Hátúni 10C leggur til aðgang að aðstöðu og sérfræðiráðgjöf til að styðja nemendur við áframhaldandi þróun hugmynda og frumgerða, einkum í tengslum við NKG+, sem er hugmynda- og frumgerðakeppni fyrir 8.-10.bekk. 

Á myndinni eru Flosi Eiríksson, framkvæmdastjóri Örtækni og Fablab Hátúni, Silja Bára R. Ómarsdóttir, rektor Háskóla Íslands, og Eva Þengilsdóttir, framkvæmdarstjóri ÖBÍ, sitjandi en þau undirrituðu samninginn. Viðstödd voru Eyjólfur B. Eyjólfsson, forstöðumaður NýMenntar, Unnur Sesselía Ólafsdóttir, verkefnastjóri hjá ÖBÍ, og Sveinn Bjarki Tómasson, verkefnisstjóri NKG og NKG+.