Skip to main content
26. maí 2026

Sameina krafta háskólanna á sviði umhverfisfræða

Sameina krafta háskólanna á sviði umhverfisfræða - á vefsíðu Háskóla Íslands

Þingeysk náttúra og menning léku lykilhlutverk í fræðsluferð þrjátíu alþjóðlegra nemenda við heimskautarétt til Mývatnssveitar þann 8. maí 2026. Ferðin er liður í þverfaglegri samvinnu námsbrautar Háskólans á Akureyri í heimskautarétti og Rannsóknaseturs Háskóla Íslands í Þingeyjarsveit, þar sem megintilgangurinn er að auka kennslusamstarf milli stofnananna og sameina krafta við rannsóknir í umhverfisfræðum.

„Þar sem heimskautaréttur er afar fjölþættur og þverfaglegur er lögð sífellt meiri áhersla á viðleitni til að læra hvert af öðru,“ segir Antje Neumann, sem hefur umsjón með náminu. Nemendurnir eru að ljúka fyrsta ári sínu í náminu og ferðin var hluti af námskeiði í umhverfisrétti og líffræðilegri fjölbreytni. Þeir koma frá fimmtán löndum: Nígeríu, Svíþjóð, Kanada, Eistlandi, Þýskalandi, Frakklandi, Bandaríkjunum, Kína, Hong Kong, Sviss, Japan, Úganda, Kamerún, Kenýa og Gana. Auk lögfræði er fræðilegur bakgrunnur þeirra í ýmsum greinum, svo sem náttúru- og félagsvísindum, alþjóðasamskiptum, heimspeki, ferðaþjónustu, viðskiptafræði og stjórnsýslufræði.

Markmið heimsóknarinnar var að fræðast um umhverfishugvísindi sem stunduð eru við Rannsóknaseturs Háskóla Íslands í Þingeyjarsveit og um stjórnun Vatnajökulsþjóðgarðs, sem einnig er með bækistöðvar í Gíg, og friðlýst svæði við Mývatn og Laxá. Hópurinn hlýddi á kynningar á lagalegri umgjörð og stjórnun verndarsvæða á Íslandi, auk fyrirlesturs um tengsl menningar, listar og náttúru. Nemendur fengu leiðsögn um nýuppsetta sýningu í Gíg og upplifðu náttúruna sjálfir þegar þeir tókust á við maíkulda og snjókomu í fræðslugöngu með landverði frá Vatnajökulsþjóðgarði. Þeir skoðuðu einnig fornleifar á Hofstöðum í Mývatnssveit og fengu líflega kynningu frá Unnsteini Ingasyni á sögu staðarins, þeim uppgötvunum sem þar hafa verið gerðar og leyndardómunum sem enn hafa ekki verið leystir.

„Fyrir nýstofnað rannsóknasetur okkar í umhverfishugvísindum er þetta samstarf við sérfræðinga í heimskautarétti og auðlindadeild við Háskólann á Akureyri ómetanlegt,“ segir Auður Aðalsteinsdóttir, forstöðumaður Rannsóknaseturs Háskóla Íslands í Þingeyjarsveit, sem tók á móti hópnum í Þingeyjarsveit.

Í heildina var ferðin tækifæri til að öðlast þekkingu á náttúruvernd og menningararfi í sérstæðri náttúru Mývatns. „Umhverfisréttur lifnar við þegar maður sér hvernig náttúra, menning og samfélag tengjast í þessu einstaka landslagi,” segja nemendurnir Anika Mueller og Bernhard Pellascio.

Þetta þverfaglega samstarf akademískra starfsmanna við Háskólann á Akureyri og Rannsóknasetur HÍ í Þingeyjarsveit hófst í fyrra þegar kennarar frá heimskautarétti og auðlindadeild við HA héldu fyrirlestra fyrir nemendur HÍ í umhverfishugvísindum í fjögurra daga staðlotu í rannsóknasetrinu í Þingeyjarsveit. Í náinni framtíð mun samstarfið þó ekki takmarkast við kennslu því markmiðið er einnig að sameina krafta í þverfaglegum umhverfisrannsóknum.

„Fyrir nýstofnað rannsóknasetur okkar í umhverfishugvísindum er þetta samstarf við sérfræðinga í heimskautarétti og auðlindadeild við Háskólann á Akureyri ómetanlegt,“ segir Auður Aðalsteinsdóttir, forstöðumaður Rannsóknaseturs Háskóla Íslands í Þingeyjarsveit. „Eins og erlendu nemendurnir frá HA upplifðu í síðustu viku má margt læra af því að tengja þessi fræði við  einstaka náttúru, náttúrurannsóknir og menningu við Mývatn og annars staðar á Norðausturlandi. Sá lærdómur nýtist bæði í fræðilegum rannsóknum og skapar tækifæri til nýstárlegs kennslusamstarfs.“

Fleiri myndir frá námskeiðinu má finna hér að neðan.

Maíkuldi og snjókjoma mættu nemendunum í heimsókninni í Þingeyjarsveit.