Skip to main content
23. mars 2026

Sæmundarstund í 15 ár

Sæmundarstund í 15 ár - á vefsíðu Háskóla Íslands

Lærdómsmannsins Sæmundar fróða Sigfússonar var minnst á hinni árlegu Sæmundarstund sem fram fór í Háskóla Íslands föstudaginn 20. mars að viðstöddum góðum hópi gesta. Fimmtán ár eru síðan stundin var fyrst haldin, en það á var aldarafmæli Háskóla Íslands. 

Sæmund fróða Sigfússon þekkja margir en hann var uppi á 11. og 12. öld. Sæmundur fór utan til náms og nam m.a. við skóla í Evrópu áður en hann sneri aftur til Íslands og gerðist prestur að Odda á Rangárvöllum. Sæmundur er þekktur bæði sem lærdómsmaður og þjóðsagnarpersóna og eflaust kannast mörg við þjóðsöguna af glímu hans við kölska sem flutti Sæmund heim til Íslands í selslíki. 

Sögunni gerði Ásmundur Sveinsson myndhöggvari skil í styttu sem stendur í skeifunni fyrir framan Aðalbyggingu og alla jafna hefur Sæmundarstund farið fram þar. Að þessu sinni viðraði hins vegar svo illa að viðburðurinn var færður inn í bókastofu í Aðalbyggingu. 

Oddafélagið, félag áhugamanna um endurreisn fræðaseturs að Odda á Rangárvöllum þar sem Sæmundur fróði bjó, hafði frumkvæði að viðburðinum árið 2011 en hann hefur verið samstarfsverkefni félagsins, Stúdentaráðs HÍ og skrifstofu rektors Háskóla Íslands og fer alla jafna fram á degi sem næst vorjafndægri.

Á Sæmundarstund í ár flutti Þór Jakobsson, fyrrverandi formaður Oddafélagsins og helsti hvatamaður að viðburðinum, stutt erindi. Hann rakti m.a. tilurð stundarinnar og fram kom í máli hans að markmiðið með henni væri m.a. að vekja háskólaborgara, ekki síst þá yngri, til umhugsunar um hvað lægi á bak við listaverkið fyrir framan Aðalbyggingu og hver Sæmundur fróði hefði verið. 

Þá flutti Magnús Diðrik Baldursson, skrifstofustjóri rektorsskrifstofu, kveðju frá Silju Báru R. Ómarsdóttur, rektor Háskóla Íslands, sem átti ekki heimangengt að þessu sinni og framhaldinu fluttu þeir Ágúst Sigurðsson, núverandi formaður Oddafélagsins, og Arent Orri J. Claessen, forseti Stúdentaráðs, stutt ávörp þar sem þeir vörpuðu ljósi á friðarmanninn og menntamanninn Sæmund. 

Myndir Tryggva Más Gunnarssonar frá Sæmundarstund má finna hér að neðan.
 

Gestir á Sæmundarstund.
Þór Sigfússon ávarpar gesti.
Magnús Diðrik Baldursson, skrifstofustjóri rektorsskrifstofu, flutti kveðju frá Silju Báru R. Ómarsdóttur, rektor Háskóla Íslands, sem átti ekki heimangengt að þessu sinni.
Ágúst Sigurðsson, núverandi formaður Oddafélagsins, ræddi m.a. um friðarmanninn Sæmund fróða.
Arent Orri J. Claessen, forseti Stúdentaráðs, fjallaði um menntamannin Sæmund fróða í sínu ávarpi.