Skip to main content
28. janúar 2026

Rýndu í áfallastjórnun í COVID-19-faraldrinum á Norðurlöndum

Rýndu í áfallastjórnun í COVID-19-faraldrinum á Norðurlöndum - á vefsíðu Háskóla Íslands

Baldur Þórhallsson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, og Ásthildur Elva Bernharðsdóttir, prófessor í við félagsfræðideild Háskólann á Bifröst, hafa undanfarin þrjú ár leitt rannsóknarverkefnið Áfallastjórnun í COVID-19-faraldrinum: Stjórnarhættir og leiðtogahæfni. Í verkefninu voru leiddir saman norrænir fræðimenn á sviði áfallastjórnunar sem greindu og lögðu mat á stefnumótun og viðbrögð Íslands, Grænlands, Noregs, Svíþjóðar, Færeyja, Finnlands og Danmerkur við COVID-19-faraldrinum. Markmið verkefnisins var að styrkja viðnámsþrótt og samhæfingargetu innan og milli norrænu ríkjanna þegar kemur að áfallastjórnun.

Ólíkar nálganir Norðurlandanna við faraldrinum – landa sem eru menningar- og stjórnarfarslega mjög svipuð – sköpuðu einstakan vettvang til að rannsaka þær áfallstjórnunaraðferðir sem ríkin beittu og árangri þeirra. Þá bauð ólík stærð landanna upp á tækifæri til að rannsaka og meta að hvaða leyti stærð stjórnsýsla og stjórnkerfa ríkjanna hafði áhrif á viðbrögð þeirra við áföllunum.

 

Baldur Þórhallsson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, var annar stjórnenda verkefnisins. MYND/Kristinn Ingvarsson

Fyrstu niðurstöður hafa m.a. leitt ljós að smæð ríkja þarf ekki að vera hindrun þegar brugðist er við heimsfaraldri eins og COVID-19. Smæð getur jafnvel verið gangleg þegar taka þarf á flóknum áföllum og stjórnsýslulegum úrlausnarefnum. Sveigjanleiki lítillar stjórnsýslu gerir litum ríkjum kleift að bregðast hratt við aðstæðum og leysa erfið viðfangsefni á skilvirkan hátt. Þegar hafa verið birtar fjórar fræðigreinar þar sem sérstaklega er skoðað hvernig stærð stjórnsýslu ríkjanna hafði áhrif á hvernig þau brugðust við faraldrinum. Greinarnar eru birtar tímaritinu Small States & Territories, það er A Special Section - The Nordic Countries’ crisis management of the Covid-19 pandemic: The effect of size. Þær eru í opnum aðgangi. Hægt er að lesa meira um verkefnið og nálgast útgefið efni hér.

Einkennismynd verkefnisins