Skip to main content
26. ágúst 2024

Rúmlega 30 afreksnemar fá styrk til náms í Háskóla Íslands

Rúmlega 30 afreksnemar fá styrk til náms í Háskóla Íslands - á vefsíðu Háskóla Íslands

Þrjátíu og einn nýnemi við Háskóla Íslands, sem náð hefur framúrskarandi árangri í námi til stúdentsprófs, tók við styrk úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta HÍ við hátíðlega athöfn í Aðalbyggingu Háskólans í dag. Styrkþegarnir koma úr öllum landshlutum og innritast í námsleiðir á öllum fimm fræðasviðum skólans.

Afreks- og hvatningarsjóður stúdenta Háskóla Íslands var settur á laggirnar árið 2008 og var úthlutað úr honum í sautjánda sinn í dag. Frá upphafi hafa hátt í 500 framúrskarandi námsmenn hlotið styrki úr sjóðnum. Auk námsárangurs á stúdentsprófi er litið frammistöðu á öðrum sviðum, svo sem í félagsstörfum í framhaldsskóla eða listum og íþróttum, við úthlutun úr sjóðnum. Hann styrkir einnig nemendur sem hafa sýnt fádæma seiglu og þrautseigju og hafa, þrátt fyrir afar erfiðar aðstæður, staðið sig afar vel í námi. 

Að þessu sinni bárust alls 76 umsóknir um styrki úr sjóðnum og voru þær afar metnaðarfullar. Því var úr vöndu að ráða fyrir stjórn sjóðsins sem veitti að þessu sinni 31 nýnema við Háskóla Íslands styrk. Þeir koma úr 15 framhaldskólum og í hópi þeirra eru 13 dúxar og semidúxar. Styrkupphæð hvers og eins nemur 375 þúsund krónum og heildarupphæð styrkjanna er því rúmar 11,6 milljónir króna. 

Styrkhafarnir eru: Anna Lára Grétarsdóttir, Álfrún Lind Helgadóttir, Embla Sól Óttarsdóttir, Eygló Hildur Ásgeirsdóttir, Eowyn Marie Alburo Mamalias, Gabríela Albertsdóttir, Guðmunda Þórunn Þorvarðardóttir, Helga Kolbrún Jakobsdóttir, Helga Viðarsdóttir, Herdís Pálsdóttir, Hildur Vala Ingvarsdóttir, Inga Rakel Aradóttir, Ingibjörg Ólafsdóttir, Ingunn Guðnadóttir, Jóanna Marianova Siarova, Karina Olivia Haji Birkett, Katrín Hekla Magnúsdóttir, Lilja Jóna Júlíusdóttir, Lúcía Sóley Óskarsdóttir, Magnús Máni Sigurgeirsson, Malín Marta Eyfjörð Ægisdóttir, María Björk Friðriksdóttir, María Margrét Gísladóttir, Nazi Hadia Rahmani, Ólafía Guðrún Friðriksdóttir, Ragna María Sverrisdóttir, Sigrún Edda Arnarsdóttir, Sveinn Jökull Sveinsson, Todor Miljevic, Tómas Böðvarsson og Unnur Björg Ómarsdóttir. 

Styrkirnir úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta Háskóla Íslands eru veittir með stuðningi Aldarafmælissjóðs Háskóla Íslands og Happdrættis Háskóla Íslands. 
Stjórn Afreks- og hvatningarsjóðs stúdenta Háskóla Íslands skipa Steinunn Gestsdóttir, aðstoðarrektor kennslu og þróunar og prófessor við Sálfræðideild, Ólafur Pétur Pálsson, prófessor við Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild, og Silja Bára Ómarsdóttir, prófessor við Stjórnmálafræðideild.

Nánari upplýsingar um styrkhafana eru í meðfylgjandi skjali.
 

Styrkþegar og fulltúar þeirra ásamt rektor HÍ og fulltrúum úr stjórn sjóðsins.