Ríflega 400 skráð í inntökupróf við Læknadeild og Tannlæknadeild HÍ

Inntökupróf í læknisfræði, sjúkraþjálfunarfræði og tannlæknisfræði við Háskóla Íslands fer fram dagana 11. og 12. júní og alls munu 415 þreyta það, þar af hluti á Akureyri.
Umsækjendur um nám á námsleiðunum þremur þreyta allir sama inntökupróf. Alls hyggjast 49 taka inntökuprófið með það fyrir augum að hefja nám í tannæknisfræði, 288 hyggja á nám í læknisfræði og 78 í sjúkraþjálfunarfræði.
14 þreyta prófið á Akureyri en þetta er í annað sinn sem boðið er upp á inntökupróf þar. Með þessu vill Háskóli Íslands koma betur til móts við nemendur víða um land sem hafa áhuga á að þreyta prófið.
Sem fyrr miðast fjöldi þeirra sem fá inngöngu í námsleiðirnar við afkastagetu bæði deilda og sjúkrahúsa við þjálfun nemenda. Líkt og síðustu ár verða 75 umsækjendur teknir inn í læknisfræði og 35 í sjúkraþjálfunarfræði. Þá verður allt að 40 nemendum boðið að hefja nám í tannlæknisfræði í haust. Í desember fara svo fram samkeppnispróf í tannlæknisfræði eins og lengi hefur tíðkast og átta nemendum verður boðið að halda áfram námi á vormisseri 2027.
Í Reykjavík fer inntökuprófið fram í nokkrum byggingum Háskóla Íslands en á Akureyri þreyta þátttakendur prófið í Háskólanum á Akureyri. Prófið þreyta þátttakendur í prófakerfinu Inspera og geta ýmist nýtt eigin tölvur eða tölvur sem Háskóli Íslands lánar þeim til próftöku.
Eins og fyrri ár geta þau sem fara í inntökuprófið en fá ekki inngöngu í umræddar námsleiðir skráð sig í aðrar deildir Háskóla Íslands eftir að niðurstöður hafa verið birtar.
