Skip to main content
17. nóvember 2025

Rannsakaði útilokandi samfélagsleg og pólitísk kerfi

Rannsakaði útilokandi samfélagsleg og pólitísk kerfi - á vefsíðu Háskóla Íslands

Claude Nassar hefur varið doktorsritgerð sína í menningarfræði, Towards Unsettling the Auto-institution of Colonial Logics, við Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands. Doktorsritgerðin var unnin undir leiðsögn Björns Þorsteinssonar, prófessors í heimspeki við Háskóla Íslands og Mijke van der Drift, rannsóknaraðjunkts við Royal College of Art í London. Einnig voru í doktorsnefnd Jón Ólafsson, prófessor í menningarfræði við Háskóla Íslands og Hlynur Helgason, dósent í listfræði við Háskóla Íslands.

Andmælendur við vörnina voru Matt Lewis, rannsóknarlektor við Royal College of Art í London og Rick Dolphijn, dósent við Háskólann í Utrecht, í Hollandi. Gauti Kristmannsson, forseti Íslensku- og menningardeildar, stjórnar athöfninni sem fór fram í Hátíðasal í Aðalbyggingu Háskóla Íslands, föstudaginn 14. nóvember. 

Um rannsóknina

Doktorsverkefnið fjallar um hvernig útilokandi samfélagsleg og pólitísk kerfi viðhalda sér milli kynslóða í gegnum staðbundnar frásagnir og venjur. Rannsóknin skoðar áhrif nýlenduhyggju og nútímavæðingar á staðbundin tengsl og hvernig þessar umbreytingar móta nútímann með samtvinnuðum kúgunarformum. Verkefnið byggir á afnýlendufræðum sem og hinsegin- og femínískum fræðum og greinir hvernig staðbundin merkingarkerfi og reglur styrkja hugmyndir um kynþátt, kyngervi og kynvitund. Einnig er skoðað hvernig skrifræðileg stjórnkerfi takmarka aðra möguleika til að afla sér lífsviðurværis og þekkingar. Markmiðið er að varpa ljósi á aðrar leiðir til að hugsa, lifa og skapa merkingu á sameiginlegan hátt.

Doktorsritgerðin er hluti af rannsóknarverkefninu The Future of European Independent Art Spaces in a Period of Socially Engaged Art (FEINART), sjá www.feinart.org.

Um doktorinn

Claude Nassar er með BA-próf í grafískri hönnun frá Notre Dame-Louaize-háskólanum í Líbanon og MA-próf frá námsbrautinni Non Linear Narrative við Konunglegu listaakademíuna í Haag. Hann vinnur að listsköpun og rannsóknum þar sem félagsleg, frásagnarleg og hljóðræn form mætast.

Hlynur Helgason, Jón Ólafsson, Gauti Kristmannsson,  Rick Dolphijn, Claude Nassar, Matt Lewis, Ólöf Garðarsdóttir, Mijke van der Drift og Björn Þorsteinsson.