Skip to main content
19. apríl 2026

Ræddu um aukna samfellu milli framhaldsskóla og háskóla 

Ræddu um aukna samfellu milli framhaldsskóla og háskóla  - á vefsíðu Háskóla Íslands

Náms- og starfsráðgjöfum, sálfræðingum og öðru fagfólki í stoðþjónustu framhaldsskólanna var boðið að funda með Nemendaráðgjöf HÍ þann 10. apríl með það fyrir augum að efla samtal um undirbúning nemenda fyrir háskólanám. 

Áhersla var lögð á að kynna fjölbreytta starfsemi og þjónustu Nemendaráðgjafar HÍ og jafnframt ræða hvaða upplýsingar, stuðning og væntingar nemendur hafa þegar hugað er að háskólanámi. Þá var einnig fjallað um hvernig stoðþjónusta þessara tveggja skólastiga getur stutt sem best við nemendur á leið þeirra úr framhaldsskóla og yfir til Háskóla Íslands. 

Öllum þeim sem starfa við stoðþjónustu framhaldsskólanna, náms- og starfsráðgjöfum, sálfræðingum og öðrum fagaðilum var boðið að mæta á staðinn eða taka þátt í fundinum gegnum streymi.

Margrét Sigrún Sigurðardóttir, sem er nýtekin við starfi sviðsstjóra Kennslusviðs HÍ, setti fundinn og ræddi um mikilvægi tengsla og hversu miklu máli fyrsta árið í háskólanámi skiptir. 

Juan Camilo Roman Estrada, fjölmenningarfulltrúi og verkefnisstjóri, kynnti verkefnið Sprett en markmið þess er að stuðla að aukinni þátttöku innflytjenda í háskólanámi og sjálfbærni í námi.  

Það er mikilvægt að hlusta á raddir stúdenta og Sæþór Már Hinriksson, nemandi í viðskiptafræði, sagði frá reynslu sinni af háskólanámi og hvað væri hægt að hafa í huga varðandi þjónustu við stúdenta.

 

Svandís Sturludóttir, deildarstjóri Nemendaráðgjafar HÍ, sagði rannsóknir benda til aukinnar félagslegrar einangrunar og einmanaleika hjá ungu fólki og óvissa í samfélaginu hefði raunveruleg áhrif á líðan og framtíðarvonir nemenda.

Mennskan aldrei mikilvægari en nú

Svandís Sturludóttir, deildarstjóri Nemendaráðgjafar HÍ, kynnti jafnframt starfsemi ráðgjafarinnar og starfsfólk fagteyma kynnti fjölbreytta þjónustu sem stendur háskólanemum til boða, sama á hvaða stigi náms þeir eru.

Svandís sagði rannsóknir benda til aukinnar félagslegrar einangrunar og einmanaleika hjá ungu fólki og óvissa í samfélaginu hefði raunveruleg áhrif á líðan og framtíðarvonir nemenda. „Þess vegna hefur mennskan aldrei verið mikilvægari en nú. Í okkar starfi þýðir það að við mætum nemendum þar sem þeir eru staddir, hlustum af virðingu og án fordóma og sköpum umhverfi þar sem fjölbreytileiki er styrkur, sveigjanleiki er sjálfsagður og hver nemandi fær að vera hann sjálfur,“ sagði hún m.a.

Fundurinn var jafnframt vettvangur til að deila reynslu beggja hópa, bera saman verklag og ræða hvernig hægt sé að samræma skilaboð til nemenda þannig að þeir upplifi samfellu fremur en rof þegar þeir færa sig milli skólastiga. Með því að setja umræðurnar í þetta samhengi varð ljóst að markmiðið var ekki aðeins að greina vandamál heldur að leggja grunn að raunhæfri aðgerðaráætlun sem nýtist bæði fagfólki og nemendum til framtíðar.

Silja Bára R. Ómarsdóttir, rektor Háskóla Íslands, flutti svo lokaorð.

Mikill vilji og áhugi er fyrir því að fylgja eftir þessum fundi með frekara samtali og vinnufundum þar sem ákveðin málefni sem snerta bæði nemendur og skólastigin yrðu rædd. Hugmynd um sameiginlega verkfærakistu kom upp ásamt því að efna til sameiginlegra fræðslufunda.

Myndir á fundinum tók Kristinn Ingvarsson og þær má finna hér að neðan.

Gestir á fundinum
Margrét Sigrún Sigurðardóttir
Jónína Kárdal, náms- og starfsráðgjafi, var fundarstjóri og Svandís Sturludóttir, deildarstjóri Nemendaráðgjafar HÍ, flutti erindi á fundinum.
Gestir á fundinum.
Gestir á fundinum
Silja Bára R. Ómarsdóttir, rektor Háskóla Íslands, flutti lokaorð á fundinum.
Fundurinn var vel sóttur en hann var bæði í boði á staðnum og í streymi.