Skip to main content
29. apríl 2026

Nýtt hlaðvarp um rannsóknaháskólann HÍ 

Nýtt hlaðvarp um rannsóknaháskólann HÍ  - á vefsíðu Háskóla Íslands

Ný hlaðvarpsþáttaröð, sem ber yfirskriftina Rannsóknaháskóli verður til, var kynnt á viðburði í Eddu þriðjudaginn 28. apríl, en hún byggist á viðtölum við rúmlega 60 akademíska starfsmenn Háskóla Íslands sem voru við störf í skólanum á síðasta þriðjungi 20. aldar og fram á þessa öld. 

Alls er um að ræða 30 hlaðvarpsþætti með viðtölum við fræðimenn af öllum fræðasviðum Háskóla Íslands þar sem m.a. er fjallað um starfsaðstæður, kennsluhætti og rannsóknir á síðustu áratugum 20. aldar og fram yfir aldamótin 2000 þegar skólinn var að breytast í rannsóknaháskóla. Einnig er ljósi varpað á það hvernig kennsla hófst í háskólanum í ýmsum námsgreinum, eins og stjórnmálafræði, sjúkraþjálfun, líffræði, jarðeðlisfræði, hjúkrunarfræði og uppeldis- og menntunarfræði.

Í viðtölunum er þessi merkilega uppbyggingarsaga sögð frá sjónarhóli vísindamannanna sjálfra og fæst þannig ómetanleg, persónuleg sýn á þróun vísindastarfs í Háskólanum. 

allir vidmaleendur

Aðstandendur verkefnisins eru Guðmundur Jónsson, fyrrverandi prófessor í sagnfræði, og Leifur Reynisson, sagnfræðingur og verkefnisstjóri hjá Miðstöð munnlegrar sögu í Landsbókasafni – Háskólabókasafni. Upptökur og úrvinnsla efnisins hefur staðið allt frá árinu 2022 en áætlað er að viðtölin í heild sinni verði varðveitt hjá Miðstöð munnlegrar sögu.

Guðmundur og Leifur fluttu báðir stutt erindi við opnun hlaðvarpsþáttanna. Auk þeirra flutti Silja Bára R. Ómarsdóttir, rektor HÍ, opnunarávarp og Jón Atli Benediktsson, fyrrverandi rektor, opnaði vefinn með hlaðvarpinu formlega, en verkefnið naut stuðnings frá rektorsskrifstofu í tíð hans. 

Alla hlaðvarpsþættina má nálgast á vef HÍ

Myndir Kristins Ingvarssonar frá opnun hlaðvarpsins má finna hér að neðan.

Gestir
Hildur Kristmundsdóttir, framkvæmdastjóri Raunvísindastofnunar var fundarstjóri, Leifur Reynisson, annar aðstandenda hlaðvarpsins, Jón Atli Benediktsson, fyrrverandi rektor, Silja Bára R. Ómarsdóttir rektor og Guðmundur Jónsson, annar aðstandenda hlaðvarpsins.