Skip to main content
3. september 2026

Nýtt háskólaráð tekur til starfa

Nýtt háskólaráð tekur til starfa - á vefsíðu Háskóla Íslands

Nýskipað háskólaráð, sem starfa mun til loka júnímánaðar 2028, kom saman til síns fyrsta reglulega fundar í dag, 3. september. 

Hlutverk háskólaráðs er skilgreint í lögum um opinbera háskóla nr. 85/2008 og í reglum fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009. Háskólaráð fer með stjórn Háskóla Íslands ásamt rektor og er ráðinu m.a. ætlað að marka heildarstefnu í málefnum skólans og móta skipulag hans. Háskólaráð fer með almennt eftirlit með starfsemi háskólans í heild, einstakra fræðasviða og háskólastofnana og að hann starfi í samræmi við lög og stjórnvaldsfyrirmæli. Þá skiptir háskólaráð fé milli rekstrareininga innan þess ramma sem fjárveitingar og reglur heimila og ráðið setur reglur fyrir háskólann eftir því sem nánar er mælt fyrir um í lögum um opinbera háskóla.

Háskólaráð úrskurðar um ýmis mál innan skólans og stofnana hans og ber ábyrgð á framkvæmd samstarfssamninga sem háskóli gerir við fyrirtæki og aðrar stofnanir. Undir háskólaráð heyra ýmsar nefndir sem snerta ólíka þætti í starfi skólans, svo sem kennslu, vísindi, jafnréttismál, fjármál og stefnu. 

Fundargerðir ráðsins eru aðgengilegar öllum.

Í háskólaráði HÍ sitja 11 manns að rektor meðtöldum sem er forseti ráðsins. Starfsfólk skólans tilnefnir þrjá fulltrúa í ráðið háskólaþingi, nemendur tilnefna tvo, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra tvo fulltrúa auk þess sem ráðið sjálft velur þrjá fulltrúa til viðbótar. 

Háskólaráð er skipað svo tímabilið 1. júlí 2026 til 30. júní 2028: 

Aðalmenn: 

  • Silja Bára R. Ómarsdóttir, prófessor í alþjóðastjórnmálum og rektor Háskóla Íslands, forseti ráðsins
  • Arnar Þór Másson, stjórnarmaður og ráðgjafi, tilnefndur af háskólaráði
  • Ástmundur Níelsson, VP of Bionic Solutions hjá Össur Iceland ehf., tilnefndur af háskólaráði
  • Hólmfríður Sveinsdóttir, forseti Háskóla Íslands á Hólum, tilnefnd af menningar-, nýsköpunar og háskólaráðherra
  • Hrefna Dögg Gunnarsdóttir, lektor við Lagadeild á Félagsvísindasviði, tilnefnd af háskólaþingi
  • Katrín Jakobsdóttir, fv. forsætisráðherra Íslands, tilnefnd af háskólaráði
  • Lilja Hrönn Önnudóttir Hrannarsdóttir, laganemi, tilnefnd af heildarsamtökum nemenda
  • Ólafur Pétur Pálsson, prófessor við Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild á Verkfræði- og náttúruvísindasviði, tilnefndur af háskólaþingi
  • Ragný Þóra Guðjohnsen, dósent við Deild menntunar og margbreytileika á Menntavísindasviði, tilnefnd af háskólaþingi
  • Steinunn Valdís Óskarsdóttir, skrifstofustjóri í dómsmálaráðuneyti, tilnefnd af menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra
  • Sæþór Már Hinriksson, viðskiptafræðinemi, tilnefndur af heildarsamtökum nemenda

 
Varamenn:

  • Arngrímur Vídalín Stefánsson, dósent á Menntavísindasviði, varamaður fyrir Hrefnu Dögg Gunnarsdóttur
  • Hjalti Dagur Hjaltason, laganemi, varamaður fyrir Lilju Hrönn Önnudóttur Hrannarsdóttur
  • Halldóra Elín Einarsdóttir, varamaður fyrir Sæþór Má Hinriksson
  • Eiríkur Steingrímsson, prófessor við Læknadeild á Heilbrigðisvísindasviði, varamaður fyrir Ólaf Pétur Pálsson
  • Ómar Örn Magnússon, varamaður fyrir Steinunni Valdísi Óskarsdóttur
  • Tryggvi Þorgeirsson, læknir og forstjóri SideKick Health, varamaður fyrir Arnar Þór Másson, Ástmund Níelsson og Katrínu Jakobsdóttur
  • Þórir Jónsson Hraundal, lektor við Mála- og menningardeild á Hugvísindasviði, varamaður fyrir Ragnýju Þóru Guðjohnsen

 

Fulltrúar í háskólaráði ásamt ritara ráðsins.