Nýr lektor í hagnýtum málvísindum

Grace deMeurisse hefur verið ráðin í starf lektors í hagnýtum málvísindum við námsbraut í ensku við Mála- og menningardeild Háskóla Íslands. Grace lauk BA-prófi í málvísindum og kennslu ensku sem annars og erlends máls (TESOL) frá Western Washington University í Bellingham í Washington-ríki í Bandaríkjunum. Hún lauk meistara- og doktorsprófi í málvísindum frá University of Florida í Gainesville árið 2025 og starfaði sem gestalektor í sálfræði við Bard College í Hudson-dalnum í New York. Í meistararitgerð sinni rannsakaði hún áhrif tvítyngis/fjöltyngis á skynvitund (einkum athygli) og í doktorsrannsókn sinni rannsakaði Grace að hve miklu leyti notkun annars tungumáls en móðurmáls torveldar skilning fjölþættrar málfræði í rauntíma. Núverandi rannsóknir hennar beinast áfram að úrvinnslu annars tungumáls þar sem hún skoðar þætti á borð við færni og hvernig áhrif á milli fyrsta og annars máls verka á málskilning.
