Skip to main content
28. apríl 2026

Ný heildarstefna HÍ og kjör þriggja fulltrúa í háskólaráð á háskólaþingi 

Ný heildarstefna HÍ og kjör þriggja fulltrúa í háskólaráð á háskólaþingi  - á vefsíðu Háskóla Íslands

Ný grænbók, sem unnin hefur verið innan HÍ við undirbúning nýrrar heildarstefnu skólans fyrir tímabilið 2026-2031, og kosning fulltrúa háskólasamfélagsins í háskólaráð til næstu tveggja ára eru efst á baugi á háskólaþingi sem fer fram miðvikudaginn 29. apríl kl. 13-16 í Hátíðasal skólans. Hægt verður að fylgjast með þinginu í streymi.

Háskólaþing er samráðsvettvangur háskólasamfélagsins og fer alla jafna fram einu sinni á misseri. Þar fara fram umræður um þróun og eflingu Háskóla Íslands. Seturétt á þinginu eiga um 100 manns, þar á meðal stjórnendur skólans, kjörnir fulltrúar fræðasviða, fulltrúar helstu stofnana háskólans og samstarfsstofnana hans, kennarafélaga og stúdenta auk fulltrúa starfsmanna stjórnsýslu og úr háskólaráði. 

Háskólaþingið hefst á því að rektor fer yfir þau mál sem eru efst á baugi innan skólans. Í framhaldinu fer fram kjör fulltrúa háskólasamfélagsins í háskólaráði fyrir tímabilið 1.7.2026-30.6.2028. Þrír fulltrúar og þrír varafulltrúar úr hópi akademísks starfsfólks verða kosnir í ráðið og fer kjörið fram með rafrænum hætti meðan á þinginu stendur. 

Meginviðfangsefni háskólaþings að þessu sinni er umræða um mótun nýrrar heildarstefnu fyrir Háskóla Íslands fyrir tímabilið 2026-2031. Rögnvaldur Jóhann Sæmundsson, aðstoðarrektor vísinda og þverfræðileika, kynnir svokallaða grænbók um HÍ31 en hún grundvallast á samtali og samráði við háskólasamfélagið undanfarna mánuði og verður grunnur að nýrri heildarstefnu skólans til næstu fimm ára. Í framhaldi af kynningu Rögnvaldar fara fram umræður um grænbókina.

Að loknu kaffihléi á þinginu verða niðurstöður í kjöri fulltrúa háskólasamfélagsins í háskólaráð kynntar og þinginu lýkur svo með frekari umræðum um nýja heildarstefnu skólans.

 

Frá Háskólþingi