Skip to main content
3. september 2026

Ný bók um vanrækt tímabil í stjórnmálasögunni

Ný bók um vanrækt tímabil í stjórnmálasögunni - á vefsíðu Háskóla Íslands

Út er komin bókin Skattland: Valdstjórn á Íslandi 1281-1551 eftir Sverri Jakobsson, prófessor í miðaldasögu við Deild heimspeki, sagnfræði og fornleifafræði við Háskóla Íslands.

Í bókinni er fjallað um íslensk stjórnmál frá lögtöku Jónsbókar 1281 að staðfestingu siðbreytingarinnar 1551, hina vanræktu síðmiðaldasögu Íslands þegar Ísland var skattland Noregskonungs. Saga konungsvalds á Íslandi fyrstu aldirnar einkennist af þversögnum þar sem Íslendingar höfðu samþykkt að gangast undir konungsvald en héldu jafnframt fast í forn réttindi, lög Ólafs helga, Gamla sáttmála og Jónsbók. Starf konungsfulltrúa á Íslandi var því vandasamt og oft hættulegt.

Útgefandi er Sögufélagið. 

Meðal fyrri bóka Sverris eru Auðnaróðal (2016), Kristur. Saga hugmyndar (2018), The Varangians (2020) og Medieval Iceland (2024). 

Sverrir Jakobsson