Nóg um að vera á Nýnemadögum HÍ 31. ágúst til 4. september

Vísindaferð á kvikmyndahátíðina RIFF, hádegistónleikar, fótboltamót og fræðsla um vinnubrögð í háskóla og námstækifæri erlendis er aðeins brot af því sem í boði verður á Nýnemadögum Háskóla Íslands sem fara fram dagana 31. ágúst til 4. september.
Nýnemadagar hafa fyrir löngu unnið sér sess í dagskrá Háskóla Íslands en þeir fara alla jafna fram á fyrstu vikum skólaársins og eru samstarfsverkefni skólans og Stúdentaráðs HÍ. Markmið daganna er að bjóða nýnema velkomna í skólann og kynna fyrir þeim bæði öflugan stuðning og þjónustu skólans og fjölbreytt og skemmtilegt félagslíf.
Dagskráin stendur alla jafna í heila viku og engin breyting er á því í ár.
Hún hefst á svokölluðum kynningardegi á Háskólatorgi mánudaginn 31. ágúst milli kl. 11.30 og 13. Þar geta nýnemar og aðrir spjallað við starfsfólk á helstu þjónustueiningum skólans um hvað eina sem snertir háskólastarfið og stuðning við nemendur í HÍ. Á meðal þeirra sem verða á torginu eru fulltrúar frá Nemendaráðgjöf, Alþjóðasviði, Nemendaskrá, Tungumálamiðstöð, Ritveri, Landsbókasafni og Smáuglunni – appi Háskóla Íslands. Einnig verður hægt að spjalla við fólk frá Stúdentaráði, sjálfbærni- og umhverfismálum í HÍ, Háskólakórnum, Háskóladansinum, Visku - stéttarfélagi stúdenta, Félagi hinsegin stúdenta og Félagsstofnun stúdenta sem rekur Bóksölu stúdenta, Leikskóla stúdenta, Stúdentagarða, Stúdentakjallarann og fleira.
Háskólakórinn mun enn fremur stíga á stokk í hádeginu og taka nokkur lög fyrir gesti Háskólatorgs. Þá verður boðið upp á gönguferð um háskólasvæðið með fulltrúa nemenda við Háskóla Íslands þar sem litið verður inn í allar helstu byggingar skólans. Lagt er af stað frá upplýsingaborði fyrir nýnema á Háskólatorgi kl. 13.30 en fulltrúar Stúdentaráðs munu standa vaktina á borðinu alla vikuna og svara spurningum sem kunna að brenna á nýnemum og öðrum.
Þriðjudagurinn 1. september er svokallaður grænn nýnemadagur en eins og nafnið bendir til er hann helgaður umhverfismálum við skólann. Fulltrúar Stúdentaráðs og HÍ taka við Grænfánanum frá Landvernd og draga að húni kl. 12 og þá er ætlunin að gróðursetja tré á háskólasvæðinu. Enn fremur verða fulltrúar Strætó á Háskólatorgi milli kl. 11 og 13 og kynna nýnemakort og veita skiptinemum sérstaka aðstoð við að kaupa strætókort. Háskóli Íslands leggur áherslu á að bæði nemendur og starfsfólk nýti sér umhverfisvænar samgöngur til og frá háskólasvæðinu.
Alþjóðasvið Háskóla Íslands verður enn fremur með kynningu á tækifærum til námsdvalar erlendis í stofu 281 í Sögu kl. 12:30-13:10 þennan dag. Sú kynning er opin öllum þeim sem vilja kynna sér þá ótal möguleika sem Háskóli Íslands býður upp á í skiptinámi, starfsnámi og skemmri námsdvöl erlendis.
Í hádeginu miðvikudaginn 2. september stígur listamaðurinn Yungamli á stokk og heldur örtónleika á sviðinu á Háskólatorgi. Yungamli er listamannsnafn Tuma Björnssonar, sem einnig er þekktur sem Tumi Gonzo Björnsson.
Þann dag verður Nemendaráðgjöf HÍ einnig með kynningu á árangursríkum vinnubrögðum í háskóla á Teams og hefst sú kynning kl. 13. Síðar um daginn, nánar tiltekið kl. 14.10-14.50, verður Alþjóðasvið með kynningu á ensku á námstækifærum erlendis sem fer fram í stofu 300 á Háskólatorgi.
Fimmtudaginn 3. september er komið að fulltrúum Háskóladansins að láta ljós sitt skína en þau munu stíga dans og kynna starf vetrarins á Háskólatorgi kl. 12. Upp úr kl. 13.30 verður Nemendaráðgjöf svo með kynningu á Teams þar sem farið er yfir tímastjórnun og skipulag í háskólanámi, tvo mikilvæga þætti sem leggja grunninn að árangursríku námi.
Fjör færist í leikana síðar um daginn þegar Stúdentaráð stendur fyrir stórri vísindaferð á alþjóðlegu kvikmyndahátíðina RIFF í Háskólabíói. Ráðið mun annast skráningu í vísindaferðina í samstarfi við nemendafélög skólans og verður viðburðurinn auglýstur nánar á samfélagsmiðlum þegar nær dregur. Jafnframt bjóðast stúdentum sérstök kjör á hátíðarpössum RIFF.
Þetta kvöld verður Bóksala stúdenta einnig með nýnemakvöld milli kl. 18 og 20 þar sem boðið verður upp á tónlist, veitingar, pop-up og ýmislegt fleira.
Botninn verður svo sleginn í Nýnemadaga með árlegu nýnemamóti Stúdentaráðs í fótbolta föstudaginn 4. september. Það hefst kl. 12 á grasinu fyrir framan Aðalbyggingu. Þar geta öll tekið þátt í fótbolta með sínu nemendafélagi og er hvert lið skipað 7 keppendum, þar af þarf að vera einn nýnemi. Glæsilegir vinningar eru í boði fyrir sigurvegarana og liðið í skemmtilegustu búningunum. Nánari upplýsingar verður að finna á Facebook-síðu Félagslífs- og menningarnefndar Stúdentaráðs.
Allar nánari upplýsingar um einstaka viðburði Nýnemadaga eru á viðburðadagatali HÍ.
