NKG+ haldið í fyrsta sinn

Nýsköpunarkeppni grunnskólanna (NKG) hefur um árabil gefið yngri nemendum tækifæri til að vinna með eigin hugmyndir. Í vor var stigið nýtt skref með tilraunaverkefninu NKG+, sem er ætlað nemendum á unglingastigi þar sem hugmyndir eru þróaðar áfram í frumgerðir og kynntar í svokallaðri Ljónagryfju. Nemendur komu saman í Sögu, húsakynnum Menntavísindasviðs HÍ, en framkvæmd keppninnar er í höndum NýMenntar á Menntavísindasviði.
Nemendur frá nokkrum skólum komu saman í Háskóla Íslands en þeir komu ekki tómhentir. Í sínum heimaskólum höfðu þeir þegar unnið í gegnum ferli hönnunarhugsunar (Design Thinking), þróað hugmyndir og smíðað fyrstu frumgerðir.
NKG+ byggist á hugmyndafræði hönnunarhugsunar þar sem nemendur læra að greina vandamál, þróa lausnir og prófa sig áfram. Slík verkefni efla sköpunargáfu, sjálfstraust og lausnamiðaða hugsun – færni sem er lykilatriði í nútímasamfélagi. Markmiðið er ekki að finna „fullkomna“ hugmynd heldur að byggja upp hugrakka hugsuði sem þora að prófa, mistakast og læra.
Í vinnusmiðjunum var fókusinn skýr: að umbreyta góðri hugmynd í sannfærandi kynningu. Nemendur unnu markvisst að því að kjarna gildi hugmyndarinnar, skilgreina markhóp, bæta myndræna framsetningu og styrkja framkomu og framsögn. Markmiðið var að geta stigið fram með skýra og öfluga lyfturæðu, svarað spurningum af öryggi og sýnt að þau hefðu bæði trú á hugmyndinni og vilja til að fylgja henni eftir.
Kynningarnar í Ljónagryfjunni voru hápunktur verkefnisins. Þar stigu nemendur fram, kynntu hugmyndir sínar á skýran og sannfærandi hátt og svöruðu spurningum dómara. Margir komu á óvart með faglegri framkomu, hugrekki og skýra sýn á eigin verkefni.
Þátttakendur ásamt fulltrúum NýMenntar á Menntavísindasviði Háskóla Íslands.

Að verkefninu komu öflugir leiðbeinendur. Leiklistarkennararnir Jóna Guðrún Jónsdóttir, aðjunkt við Deild faggreinakennslu og Rannveig Björk Þorkelsdóttir, prófessor við sömu deild, unnu með nemendum að framkomu og framsögn og grafíski hönnuðurinn Björgvin Ívar Guðbrandsson, aðjunkt við Deild kennslu- og menntunarfræði, studdi þau í uppsetningu kynninga, myndefnis og sjónrænnar framsetningar. Þá hélt Jóhann Skúli Jónsson, lögfræðingur frá Hugverkastofu, fróðlegt erindi um hugverkarétt á hádegisverðarfundi þar sem nemendur nutu pizzu og góðra samræðna.
Það var ekki síður hugsað um félagslega þáttinn. Ísbíllinn kom í heimsókn og að lokinni Ljónagryfjunni var öllum boðið í Minigarðinn þar sem nemendur spiluðu minigolf og nutu hamborgaraveislu saman.
Reynslan af NKG+ sýnir að þörfin er til staðar. Nemendur vilja fá tækifæri til að vinna með hugmyndir sínar á dýpri hátt, skapa eitthvað raunverulegt og fá að kynna það fyrir öðrum. Verkefnið opnar jafnframt á mikilvægt samstarf skóla, háskóla og atvinnulífs.
Skólar á unglingastigi eru hvattir til að taka þátt á næsta skólaári. NKG+ er ekki aðeins keppni heldur vettvangur þar sem hugmyndir fá að vaxa, nemendur styrkjast og nýsköpun fær að blómstra.
Að lokum er vert að þakka nemendum sérstaklega fyrir þeirra framlag. Þau sýndu metnað, hugrekki og ótrúlega vinnusemi – og það var augljóst að þau stóðu með sínum hugmyndum af stolti. Þátttökuskólarnir og kennarar þeirra eiga einnig miklar þakkir skildar fyrir sitt framlag og stuðning. Þar liggur grunnurinn að því að verkefni sem þetta geti orðið að veruleika.


