Skip to main content
16. desember 2025

Níu teymi kynntu hugmyndir sínar á uppskeruhátíð Snjallræðis

Níu teymi kynntu hugmyndir sínar á uppskeruhátíð háksólahraðalsins Snjallræðis - á vefsíðu Háskóla Íslands

Teymin sem tekið hafa þátt í háskólahraðlinum Snjallræði nú í haust kynntu afraksturinn af vinnu sinni á uppskeruhátíð sem fram fór fimmtudaginn 11. desember á Nauthóli. Hugmyndirnar miða allar að því að bæta samfélag, umhverfi og hagkerfi og meðal þátttakenda voru bæði vísindamenn og nemendur við Háskóla Íslands.

Fundarstjóri á hátíðinni var Svava Björk Ólafsdóttir, verkefnastjóri nýsköpunar við Háskólann á Akureyri, en upphafsorð flutti Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarstjóri í Reykjavík. Í erindi sínu sagði Heiða Björg m.a. að mikilvægt væri að þróa verkefni sem sköpuðu samfélagslegt virði. Tók hún dæmi um verkefni sem þróuð hafa verið innan Snjallræði og urðu í framhaldinu að innviðum í borginni.

Oddur Sturluson, verkefnastjóri Snjallræðis, kynnti Snjallræði fyrir gestum og að því loknu fóru fram lokakynningar teymanna. Í pallborði sátu þau Þórey Vilhjálmsdóttir, framkvæmdastjóri Vísindagarða HÍ, Þorsteinn Kári Jónsson, forstöðumaður sjálfbærni hjá JBT Marel, og Einar Mäntylä, nýsköpunarráðgjafi hjá Orkideu.

Í hátíðarinna veitti Ásgeir Jónsson, kennari við viðskipta- og hagfræðideild HR og einn þjálfara í Snjallræði, viðurkenningu til teymanna. Auk Ásgeirs hafa þau Svava Björk og Oddur þjálfað þátttakendur í Snjallræði í ár.

Jákvæð áhrif á samfélag, umhverfi og hagkerfi

Níu teymi hafa tekið þátt í hraðlinumn í og þau hafa síðustu fjóra mánuði unnið af eldmóði við að þróa og móta hugmyndir að verkefnum sem ætlað er að hafa jákvæð áhrif á samfélag, umhverfi og hagkerfi. 

„Við erum stolt af því að styðja við áhrifarík og hugvitsdrifin verkefni sem eru enn á hugmyndastigi. Samstarf þátttakenda og ráðleggingar eldri og reyndari frumkvöðla skapar líflegan vettvang fyrir nýsköpunarverkefni í startholunum og fjölbreytnin í verkefnunum sýnir hversu öflug samfélagsleg nýsköpun getur verið,“ segir Oddur Sturluson, verkefnastjóri Snjallræðis.

Eftirfarandi teymi tóku þátt í Snjallræði í ár:

Charbo: Hugmynd er snýst um að umbreyta lífrænum úrgangi í öruggan og næringarríkan áburð til þess að bæta íslenskan jarðveg, örva vöxt plantna og draga úr þörf fyrir innfluttan áburð. Teymið skipa þau Sigrún Emelía Karlsdóttir og Liam O'Malley.

CO2 conversion: Hugmyndin snýr að skynsamlegri hönnun og uppgötvun efna til að fanga CO₂ og umbreyta því í vistvænt eldsneyti við umhverfisaðstæður með rafhvötun. Teymið er skipað þeim Younes Abghoui, Mohammad Awais og Mohammadreza Khaniha.

E-lísa: Ný nálgun í jarðvarma sem eykur afl, dregur úr áhættu og lengir líftíma borholna. Í henni felst að auka lekt borholna og hámarka orkuframleiðslu á öruggan og hagkvæman hátt í hefðbundnum jarðhitakerfum jafnt sem ofurheitum jarðhitakerfum. Guðjón Helgi Eggertsson stendur að baki verkefninu.

GeoMerge: Hönnun nýstárlegra lausna fyrir stjórnun jarðhitageyma og tækni til að bæta afköst og sjálfbærni á jarðhitasvæðum. Teymið er skipað þeim Agata Rostran Largaespada og Ximena Guardia Muguruza.

Gleipnir Lífsmiðja: Líftæknifyrirtæki þar sem virkjaður er erfðamáttur gersveppa og hönnunarlíffræði nýtt til að skapa byltingarkenndar lausnir í lyfjaþróun. Teymið er skipað þeim Guðjóni Ólafssyni og Henný Adolfsdóttur.Tón-tyngi: Verkefnið snýst um að hanna umgjörð utan um rafrænan söngvabanka, með textum, nótum, hljóðskrám og kennsluefni, sem yrði aðgengilegur fyrir breiðan hóp notenda, fagfólk, foreldra og kennara. Teymið er skipað Helgu Rut Guðmundsdóttur, Aleksöndru Kozimala, Adam J. Switala og Nataliu Duarte Jeremías.

Immigrant Inclusion: Að hugmyndinni stendur Magnea Marinósdóttir og snýr verkefnið að inngildingu fólks af erlendum uppruna með áherslu á borgaralega og lýðræðislega þátttöku.

Lengi býr að fyrstu gerð: Hönnun skólamatseðla með næringarríkum mat, elduðum frá grunni, sem ætlaðir eru til að kynna börn fyrir ólíku hráefni og draga úr matarsóun. Teymið er skipað þeim Kristínu Petrínu Pétursdóttur og Fannýju Kristínu H. Maríudóttur.

Tón-tyngi: Verkefnið snýr að því að hanna umgjörð utan um rafrænan söngvabanka með textum, nótum, hljóðskrám og kennsluefni, sem yrði aðgengilegur fyrir breiðan hóp notenda, fagfólk, foreldra og kennara. Teymið er skipað Helgu Rut Guðmundsdóttur, Aleksandra Kozimala, Adam J. Switala og Natalia Duarte Jeremías.

Vera: Snýr að lausnum sem brúa bilið í þjónustu og samskiptum, styrkja stöðu einstaklinga í viðkvæmri stöðu og gera heilbrigðis- og velferðarkerfið skilvirkara og mannúðlegra. Teymið er skipað þeim Sigríði Kristínu Hrafnkelsdóttur, Hildi Harðardóttur og Birnu Björnsdóttur.

Árangursríkt haust að baki með góðu samstarfi háskólanna

Snjallræði er fyrsti sameiginlegi háskólahraðall Íslands og er samstarfsverkefni Háskólans á Akureyri, Háskóla Íslands og Háskólans í Reykjavík. Hann hófst í byrjun september með vinnustofu í Grósku - hugmyndahúsi en önnur vinnustofan fór fram á Húsavík í lok september, samhliða Hönnunarþingi Húsavíkur. Um miðjan október fór þriðja vinnustofan fram í HR og sú fjórða og síðasta nú í lok nóvember í Grósku.

Markmiðið með Snjallræði er að þjálfa teymi í sprotahönnun þannig að þau geti fært hugmyndir sínar upp á næsta stig í þróunarferlinu. Kjarninn í hraðlinum eru vinnustofur um nýsköpun og hönnunarhugsun, haldnar í samstarfi við MITdesignX.

Teymin sem tóku þátt í Snjallræði í ár ásamt þjálfurum í hraðlinum.