Níu nýir lektorar ráðnir við Menntavísindasvið

Níu nýir lektorar hafa verið ráðnir til starfa við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Þeir koma úr fjölbreyttum fræðigreinum og búa yfir víðtækri reynslu af kennslu, rannsóknum og faglegu starfi. Rannsóknar- og kennsluáherslur þeirra spanna meðal annars tungumál og fjöltyngi, leikskólafræði, læsi, tækni og nýsköpun í menntun, sjálfbærnimenntun, heimspeki menntunar og sálfræði. Eftirtalið starfsfólk var ráðið til starfa:
Ingunn Hreinberg Indriðadóttir er lektor við deild faggreinakennslu. Hún lauk BA-prófi í almennum málvísindum frá SPBU í Sankti Pétursborg árið 2011, MA-prófi í almennum málvísindum frá Háskóla Íslands árið 2014 og doktorsprófi í íslenskri málfræði frá HÍ árið 2023.
Ingunn hóf störf á Menntavísindasviði sem aðjúnkt árið 2024 og var jafnframt nýdoktor við Háskólann á Akureyri á árunum 2024–2026. Áður starfaði hún meðal annars við kennslu og rannsóknir á Hugvísindasviði HÍ. Helstu kennslu- og rannsóknaráherslur hennar eru setningafræði, tilbrigðarannsóknir, félagsmálvísindi, fjöltyngd máltaka og menntun nemenda með fjölbreyttan tungumálabakgrunn.
Sveinn Bjarki Tómasson er lektor við deild faggreinakennslu. Hann er með B.Ed.-gráðu í hönnun og smíði frá Kennaraháskóla Íslands og M.Ed.-gráðu í náms- og kennslufræði frá Háskóla Íslands, með áherslu á upplýsingatækni og miðlun.
Sveinn starfaði um árabil sem kennari í hönnun og smíði við Melaskóla og síðar við skólaþróun og ráðgjöf hjá Reykjavíkurborg. Undanfarin ár hefur hann starfað sem verkefnastjóri nýsköpunar- og tæknimenntunar hjá Nýmennt á Menntavísindasviði. Kennslu- og rannsóknaráhugi hans beinist meðal annars að hönnun og smíði, handverki, verklegu og skapandi námi, nýsköpunar- og tæknimennt og útinámi.
Bryndís Gunnarsdóttir er lektor við deild kennslu- og menntunarfræði. Hún lauk B.Ed.-gráðu í leikskólakennarafræði frá Háskóla Íslands árið 2009, MA-gráðu í alþjóðlegri leikskólafræði árið 2012 og doktorsprófi í menntavísindum frá HÍ árið 2025.
Bryndís hefur starfað sem aðjúnkt við Menntavísindasvið frá árinu 2021 en áður starfaði hún sem leikskólakennari á Íslandi og í Noregi. Rannsóknir hennar beinast einkum að yngstu börnum leikskólans, félagslegum samskiptum þeirra, sjálfsprottnum leik og námi í gegnum leik.
Tryggvi Brian Thayer er lektor við deild faggreinakennslu. Hann lauk MA- og doktorsprófi í samanburðarmenntunarfræðum frá Háskólanum í Minnesota og BA-prófi í heimspeki frá Háskóla Íslands.
Tryggvi hefur starfað við Menntavísindasvið frá árinu 2013, meðal annars sem verkefnastjóri, kennsluþróunarstjóri og aðjúnkt. Rannsóknir hans beinast að upplýsingatækni í skólastarfi og sérstaklega að framtíð menntunar með tilliti til tækniþróunar.
Auður Soffíu Björgvinsdóttir er lektor við deild kennslu- og menntunarfræði. Hún er grunnskólakennari að mennt, með MA-próf í menntavísindum með áherslu á lestrarfræði frá Háskólanum á Akureyri og doktorspróf í menntavísindum frá Háskóla Íslands.
Auður starfaði um árabil sem grunnskólakennari og hefur verið aðjúnkt við Menntavísindasvið frá árinu 2023. Rannsóknir hennar beinast að þróun lestrarfærni, innleiðingu og framkvæmd aðferða við lestrarkennslu og mati á læsi.
Heather Cline er lektor við deild menntunar og margbreytileika. Hún lauk BA-prófi í sálfræði frá Winona State University og MA- og doktorsprófi frá University of Minnesota á sviði menntunarfræða með áherslu á fjölskyldur, ungmenni og samfélag.
Heather hefur meðal annars starfað sem lektor við University of Minnesota og við þróun foreldrafræðslu. Kennslu- og rannsóknaráhugi hennar beinist að námsumhverfi fyrir foreldra, samskiptum foreldra og barna og þróun náms- og stuðningsúrræða sem efla velferð fjölskyldna, færni foreldra og jákvæðan þroska barna.
Karen Jordan er lektor við deild menntunar og margbreytileika. Hún lauk BSc-prófi í vistfræði frá Aberystwyth University, MA-prófi í umhverfis- og auðlindafræði frá Háskóla Íslands og doktorsprófi í menntunarfræðum frá HÍ árið 2022.
Karen hefur verið aðjúnkt við Menntavísindasvið frá árinu 2019 og áður sinnt verkefnum tengdum sjálfbærnimenntun. Kennsla hennar tengist meðal annars alþjóðlegum og samanburðarmenntunarfræðum og rannsóknir hennar beinast að sjálfbærnimenntun og stöðu mannsins í náttúrunni.
Nanna Hlín Halldórsdóttir er lektor við deild faggreinakennslu. Hún lauk BA-prófi í heimspeki frá Háskóla Íslands, MA-prófi í heimspeki og gagnrýnum fræðum frá Kingston University í London og doktorsprófi í heimspeki frá HÍ árið 2018.
Nanna hefur meðal annars starfað sem nýdoktor við Heimspekistofnun, rannsóknarlektor við Siðfræðistofnun og aðjúnkt í samfélagsgreinakennslu. Kennslu- og rannsóknaráherslur hennar liggja meðal annars á sviði heimspeki menntunar, lífsleikni, fötlunarfræða og femínískrar heimspeki.
Magnús Blöndahl Sighvatsson er lektor við deild heilsueflingar, íþrótta og tómstunda. Hann lauk BA- og MA-prófi í sálfræði frá Háskóla Íslands og doktorsprófi í heilbrigðisvísindum frá Læknadeild HÍ árið 2023.
Magnús hefur starfað sem klínískur sálfræðingur frá árinu 2007, bæði á einkastofu og á geðsviði Landspítala, auk þess að sinna kennslu við Háskóla Íslands og Háskólann í Reykjavík. Hann var ráðinn aðjúnkt við Menntavísindasvið árið 2025 og lektor árið 2026. Helstu kennslu- og rannsóknaráherslur hans eru klínísk atferlisgreining og klínísk sálfræði, sálfræðileg meðferð og inngrip, hagnýt atferlisgreining og sálfræðileg próf.
Menntavísindasvið býður nýja lektora hjartanlega velkomna til starfa.
