Niðurstöður og gögn tengd Leiðtogavísitölu Heimsþings kvenleiðtoga hýst hjá HÍ

Fulltrúar Háskóla Íslands og Heimsþings kvenleiðtoga hafa undirritað samstarfssamning til næstu fjögurra ára en það var gert á viðburði í Loftskeytastöðinni við Suðurgötu í dag, á sjálfan Kvenréttindadaginn. Samkvæmt samningnum munu öll gögn og niðurstöður tengdar Leiðtogavísitölu Heimsþings kvenleiðtoga (e. Reykjavik Index) verða færð frá alþjóðlega rannsóknarfyrirtækinu Verian og vistuð og nýtt til frekari rannsókna og upplýsinga við Háskóla Íslands. Með þessu vill Heimsþingið leggja sitt af mörkum til að styðja við rannsóknir tengdar jafnrétti og kvenleiðtogum við Háskóla Íslands.
Heimsþing kvenleiðtoga hefur birt niðurstöður Leiðtogavísitölunnar síðastliðin átta ár en hún byggist á rannsóknum í G7-ríkjunum og fleiri ríkjum þar sem mismunandi viðhorf til karla og kvenna í leiðtogastöðum hafa verið mæld í tuttugu og þrem geirum. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar eru dregnar saman á hverju ári og gefin er út skýrsla sem síðan er kynnt á árlegu Heimsþingi kvenleiðtoga í Hörpu. Nú hafa Heimsþingið og alþjóðlega rannsóknarfyrirtækið Verian, sem hefur haft umsjón með rannsókninni, ákveðið að hefja samstarf við Háskóla Íslands sem felur í sér að Háskólinn hýsi gögn rannsóknarinnar og bjóði kennurum, nemendum og fræðafólki upp á að nota þau við rannsóknir sínar.

Silja Bára R. Ómarsdóttir, rektor HÍ, Katrín Jakobsdóttir, fyrrverandi forsætisráðherra og stjórnarkona Heimsþings kvenleiðtoga, og Hanna Birna Kristjánsdóttir, stjórnarformaður Heimsþings kvenleiðtoga, ræða mismunandi viðhorf til karla og kvenna í leiðtogastöðum.
Silja Bára R. Ómarsdóttir, rektor Háskóla Íslands, opnaði viðburðinn í Loftskeytastöðinni í dag og ræddi um mikilvægi þess fyrir háskólasamfélagið að fá svo umfangsmikil gögn til umsjónar. Á viðburðinum átti hún jafnframt samtal við Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, stjórnarformann Heimsþings kvenleiðtoga, og Katrínu Jakobsdóttur, fyrrverandi forsætisráðherra og stjórnarkonu Heimsþings kvenleiðtoga, auk þess sem Finnborg Salome Steinþórsdóttir, lektor í kynjafræði við Stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands, flutti erindi. Rætt var um mismunandi viðhorf til karla og kvenna í leiðtogastöðum, mikilvægi gagna, rannsókna og menntunar fyrir áframhaldandi framþróun jafnréttismála og hlutverk Íslands í að varðveita og þróa þekkingu á þessu mikilvæga sviði.

Finnborg Salome Steinþórsdóttir, lektor í kynjafræði við Stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands, ávarpar gesti á viðburðinum í Loftskeytastöðinni.
Nú þegar gögn rannsóknarinnar fá nýtt heimili hjá Háskóla Íslands styrkist staða Íslands sem miðstöðvar þekkingar og rannsókna á sviði jafnréttismála. Um leið skapast ný tækifæri fyrir nemendur og fræðafólk skólans til að nýta gögnin til rannsókna, kennslu og þekkingarsköpunar.
Frekari upplýsingar um Leiðtogavísitöluna er að finna á vefsíðu Heimsþings kvenleiðtoga.
Fleiri myndir Kristins Ingvarssonar frá viðburðinum má sjá hér að neðan.








