Nærri 450 kandídatar brautskráðir frá Háskóla Íslands 20. febrúar

Háskóli Íslands brautskráir 445 manns úr grunn- og framhaldsnámi föstudaginn 20. febrúar og fagnar því með athöfn í Háskólabíói kl. 15.
Athöfnin verður send út í streymi
Nemendur brautskrást frá öllum fimm fræðasviðum skólans, 175 frá Félagsvísindasviði, 56 frá Heilbrigðisvísindasviði, 53 frá Hugvísindasviði, 85 frá Menntavísindasviði og 76 frá Verkfræði- og náttúruvísindasviði. Alls taka því 445 nemendur við brautskráningarskírteini sínu á föstudag.
Athöfnin í Háskólabíói hefst á ávarpi Silju Báru R. Ómarsdsóttur, rektors Háskóla Íslands, en þetta er hennar fyrsta brautskráningarathöfn í embætti. Í framhaldinu tekur við brautskráning nemenda af fræðasviðunum fimm. Að lokinni brautskráningu mun Móey Pála Rúnarsdóttir, MA í uppeldis- og menntunarfræði, flytja ávarp fyrir hönd kandídata og athöfninni lýkur á því að Háskólakórinn syngur nokkur lög.
Kandídötum er ætlað afmarkað svæði í Háskólabíói og eru þeir beðnir um að mæta ekki síðar en kl. 14.30 í Háskólabíó. Hver kandídat verður með númerað sæti sem kemur fram á nafnalista sem afhentur verður með dagskrá við innganginn og er sætaskipan í samræmi við afhendingu prófskírteina. Hver kandítat má bjóða með sér tveimur gestum.
Umsjónarfólk verður á staðnum til að leiðbeina um sætaskipan.
