Nærri 2.800 kandídatar brautskrást frá Háskóla Íslands

- Síðasta brautskráning Jóns Atla Benediktssonar í embætti rektors
- Yfir 30 þúsund hafa brautskráðst í rektorstíð hans
Hátt í 2.800 kandídatar brautskrást úr grunn- og framhaldsnámi frá Háskóla Íslands laugardaginn 14. júní. Þetta er síðasta brautskráning Jóns Atla Benediktssonar í embætti rektors skólans.
Brautskráð verður í tvennu lagi í Frjálsíþróttahöllinni í Laugardal en þess má geta í ár eru 30 ár frá því að Háskóli Íslands hóf að brautskrá kandídata í Laugardalshöll. Beint streymi verður frá báðum athöfnum.
Sem fyrr segir eru þetta síðustu brautskráningarathafnir Jóns Atla Benediktssonar en hann lætur af embætti rektors um næstu mánaðamót. Frá því hann tók við embættinu fyrir tíu árum hafa alls 31.737 brautskráðst frá Háskóla Íslands.
Á fyrri brautskráningarathöfninni, sem hefst kl. 10, taka kandídatar í grunn- og framhaldsnámi frá Félagsvísindasviði, Heilbrigðisvísindasviði og Hugvísindasviði við prófskírteinum sínum. Samtals brautskrást 744 frá Félagsvísindasviði, 581 frá Heilbrigðisvísindasviði og 447 frá
Hugvísindasviði.
Upptaka frá fyrri brautskráningarathöfn
Seinni athöfnina, sem hefst kl. 13.30, sækja kandídatar í grunn- og framhaldsnámi frá Menntavísindasviði og Verkfræði- og náttúruvísindasviði. Alls brautskrást 711 frá Menntavísindasviði og 296 Verkfræði- og náttúruvísindasviði.
Upptaka frá seinni brautskráningarathöfn
Samanlagt brautskrást því 2.779 kandídatar frá Háskóla Íslands á laugardag.
Jón Atli Benediktsson rektor mun flytja ávarp við báðar athafnirnar en auk þess ávarpa þau Þorsteinn Magnússon, BS í viðskiptafræði, og Ásthildur Bertha Bjarkadóttir, BA í uppeldis- og menntunarfræði, gesti fyrir hönd brautskráningarkandídata á athöfnunum tveimur.
Háskóli Íslands brautskráði 462 kandídata í febrúar síðastliðnum og því hafa alls 3.241 útskrifast frá skólanum það sem af er ári.
Kandídatar hafa fengið sent bréf með nánari upplýsingum um fyrirkomulag athafnanna en starfsfólk Háskólans verður enn fremur á staðnum og leiðbeinir kandídötum um sætaskipan.
Brautskráningarathafnirnar á laugardag eru þær síðustu hjá Jóni Atla Benediktssyni, rektor HÍ, í embætti. Frá því hann tók við embættinu fyrir tíu árum hafa alls 31.737 brautskráðst frá Háskóla Íslands.